Sléttbakur
Sléttbakur (fræðiheiti: Eubalaena glacialis einnig Balaena glacialis), einnig nefndur Íslandssléttbakur og hafurketti, er stór skíðishvalur og er ein af þremur tegundum í ættkvíslinni Eubalaena, en þar af er ein á suðurhveli og tvær á norðurhveli (í Norður-Atlantshafi og Kyrrahafi). Auk þeirra er einungis norðhvalur í ætt sléttbaka (Balaenidae).
Sléttbakur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Sléttbakskýr með kálf
Stærð sléttbaks miðað við meðalmann
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Eubalaena glacialis | ||||||||||||||||
Útbreiðslusvæði sléttbaks (blár litur)
|
Lýsing
breytaSléttbakur er mjög gildvaxinn, ummál getur verið allt að 60% af heildarlengd. Hausinn er mjög stór, um 25-30% af heildarlengd. Kjafturinn er sérkennilegur en svipaður norðhval, munnvikin rísa í stórum boga frá trjónunni yfir neðra kjálkabein og taka síðan krappa beygju niður fyrir augun (augun eru aðeins fyrir neðan miðju á hliðunum). Bægslin eru stór og breið og fremur oddhvöss. Eins og nafnið bendir til hefur tegundin ekkert horn á bakinu. Sporðurinn er mjög breiður, næstum 40% af lengd hvalsins. Sléttbakur er mjög hægsyndur.
Sléttbakurinn er að mestu svartur á lit en hefur stundum óreglulega hvíta bletti á kviðnum. Þar að auki hafa sléttbakar næstum alltaf hvíta eða gulleita hrúðurbletti á yfirborði haussins.
Sléttbakar hafa stærstu eistu í dýraríkinu og vega þau samtals um eða yfir eitt tonn.[3]
Kýrnar eru heldur stærri en tarfarnir, allt að 17 metra á lengd og upp undir 90 tonn á þyngd.
Útbreiðsla og hegðun
breytaÁ öldum áður var útbreiðslusvæði sléttbaks frá Flórída að norðvesturströnd Afríku í suðri og frá Nýfundnalandi, Grænlandi og Íslandi að Norður-Noregi í norðri. Nú er hvalinn aðallega að finna við austurströnd Norður-Ameríku. Að sumarlagi heldur hann sig á norðlægum slóðum við fæðuöflun en að vetrarlagi á suðurhluta útbreiðslusvæðisins til að ala kálfa og makast.
Lítið er vitað um fæðuval sléttbaks en sennilega étur hann nánast eingöngu svifkrabbadýr. Hann veiðir með svo kallaðri sundsíun sem felst i því að synda með opinn kjaft svo að sjórinn rennur stöðugt inn að framan og síast út í gegnum skíðin til hliðanna.
Veiðar og fjöldi
breytaÁ 11. öld hófu Baskar veiðar á sléttbak og var það upphaf atvinnuveiða á hval. Það var aðallega lýsi sem var eftirsótt sem feitmeti og nýtt í smurningu, kerti og sápu. Seinna voru skíðin líka notuð í krínólínur.[4] Eftir því sem hvölum fækkaði í nágrenninu færðu Baskar sig á fjarlægari mið, meðal annars við Ísland á 16. og 17. öld (frá þeim tíma eru til þrjú basknesk-íslensk orðasöfn). Frá 17. og fram á 19. öld bættust Hollendingar, Danir, Frakkar og Bandaríkjamenn í hóp hvalveiðiþjóða. Við lok 19. aldar voru sárafáir sléttbakar eftir.
Stofninn hefur verið alfriðaður frá 1935 en lítil merki eru um að stofninn sé í vexti. Meginhluti stofnsins sem heldur sig við Norður-Ameríku var um 300 til 450 dýr og í austurhluta Atlantshafsins aðeins nokkrir tugir.[5] Árið 2017 fæddust engir kálfar á fengitíðinni og stofninn talin vera aðeins 430 dýr og þar af aðeins um 100 frjóar kýr. Fleiri sléttbakar drápust það ár síðan farið var að fylgjast náið með stofninum á níunda áratug 20. aldar. 80 prósent allra dauðra sléttbaka sem drepist hafa ótímabærum dauða undanfarin ár er vegna þess að þeir hafa flækst í fiski- og veiðarfæralínum.[6]
Tilvísanir
breyta- ↑ Reilly, S.B., Bannister, J.L. og fl., 2008
- ↑ Laist W.D.. 2017. North Atlantic Right Whales: From Hunted Leviathan to Conservation Icon. JHU Press. Retrieved on October 08, 2017
- ↑ Omura o.fl. (1969).
- ↑ Trausti Einarsson (1987).
- ↑ Kraus o.fl. (2001).
- ↑ „Engir sléttbakskálfar í ár“. ruv.is. Sótt 27. febrúar 2018.
Heimildir
breyta- Ásbjörn Björgvinsson og Helmut Lugmayr, Hvalaskoðun við Ísland (Reykjavík: JPV Útgáfan, 2002).
- Jón Már Halldórsson. „Lifa höfrungar við Ísland?“. Vísindavefurinn 19.2.2008. http://visindavefur.is/?id=7077. (Skoðað 13.4.2009).
- Kraus, S.D., P.K. Hamilton, R.D. Kenney, A. Knowton, C.K. Slay, Reproductive parameters of the North Atlantic right whale, Journal of Cetacean Research and Management, Special Issue 2 (2001): 231-236.
- Omura, H.S. Oshumi, T. Nemoto, K. Nasu og T. Kasuya, Black right whales in the North Pacific. Scientific Reports of the Whales Research Institute 21 (1969): 1-78.
- Páll Hersteinson (ritsj.), Íslensk spendýr (Vaka-Helgafell 2005).
- Reeves, R., B. Stewart, P. Clapham og J. Powell, National Audubon Society Guide to Marine Mammals of the World (New York: A.A. Knopf, 2002).
- Reilly, S.B., J.L. Bannister, P.B. Best, M. Brown, R.L. Brownell Jr., D.S. Butterworth, P.J. Clapham, J. Cooke, G.P. Donovan, J. Urbán og A.N. Zerbini, „Eubalaena glacialis“, 2008 IUCN Red List of Threatened Species (IUCN 2008).
- Sigurður Ægisson, Jón Ásgeir í Aðaldal, Jón Baldur Hlíðberg, Íslenskir hvalir fyrr og nú (Forlagið, 1997).
- Stefán Aðalsteinsson, Villtu spendýrin okkar (Reykjavík: Bjallan, 1987).
- Trausti Einarsson, Hvalveiðar við Ísland 1600-1939. Sagnfræðirannsóknir, Studia Historica 8. bindi (ritstjóri Bergsteinn Jónsson) (Bókaútgáfa Menningarsjóðs, 1987).
Tenglar
breyta- „Hver eru 10 stærstu dýr heims?“. Vísindavefurinn.
- „Eru hvalir í útrýmingarhættu í dag?“. Vísindavefurinn.
- Whale and Dolphin Conservation Society
- Innspilun á hljóði frá sléttbak. texti á ensku (U. of R.I., Office of Marine Programs) Geymt 28 september 2007 í Wayback Machine
- Vídeó af sléttbak, texti á ensku Geymt 1 janúar 2005 í Wayback Machine