Sápa
Sápa er yfirborðsvirkt efni sem er notað með vatni til þvotta og hreinsunar. Hún er fáanleg í föstu formi sem stykkjasápa (sbr. handsápa) og einnig í duft- eða vökvaformi. Efnafræðin útskýrir sápu sem salt af fitusýrum, en sápa er yfirleitt framleidd með efnahvarfi þar sem fita og sterkur basi eins og vítissódi (natríumhýdroxíð), pottaska (kalíumhýdroxíð) eða vatnssneytt natríumkarbónat koma saman. Oft er basinn unninn úr ösku harðviðar.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Sápa.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Sápu.