Grýtur
(Endurbeint frá Sekkjaskófir)
Grýtur[1] eða sekkjaskófir[2] (fræðiheiti: Solorina) er ættkvísl fléttna af engjaskófarætt.
Grýtur | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Glóðargrýta Solorina crocea í Washington-fylki í Bandaríkjunum
| ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir | ||||||||||||
flaggrýta (S. bispora) |
Grýtur eru án barkarlags á neðra borði þalsins og hafa Coccomyxa grænþörunga í þörungalaginu en Nostoc í hnyðlum.[1] Ólíkt öðrum fléttum af engjaskófarætt hafa grýtur askhirslur inni á efra borði þalsins en ekki við jaðar þalsins.[3]
Á Íslandi vaxa fimm tegundir grýtna og er ein tegund þeirra, móagrýta, á válista á Íslandi sem tegund í útrýmingarhættu (EN).[4]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
- ↑ Hörður Kristinsson (1967). Íslenskar engjaskófir. Flóra: tímarit um íslenska grasafræði 2(1): 65-76.
- ↑ Flóra Íslands (2018). Glóðargrýta - Solorina crocea. Sótt þann 25.02.2018 af http://www.floraislands.is/FLETTUR/solorcro.html
- ↑ Náttúrufræðistofnun Íslands (1996). Válisti 1: Plöntur. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.