Skútagrýta
Skútagrýta (fræðiheiti: Solorina saccata) er fléttutegund af ættkvísl grýtna. Hún er ein fimm tegundum grýtna sem vaxa á Íslandi.[1]
Skútagrýta | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Skútagrýta (Solorina saccata) í Svafnesku ölpunum í Þýskalandi.
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ekki metið
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Solorina saccata (L.) Ach. 1808 | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Útbreiðsla
breytaSkútagrýta finnst á heimskautasvæðum, um Evrasíu í tempraða beltinu og hitabeltinu og Norður-Ameríku.[2] Skútagrýta vex í lítt grónum jarðvegi, mosa, á klettaveggjum, hellisskútum eða á blautu móbergi.[3]
Á Íslandi er skútagrýta algeng frá láglendi upp í 600 metra hæð en finnst hæst í Nýjadal í 870 metra hæð og í Gæsavötnum í 930 metra hæð.[3] Skútagrýta er nokkuð algengari á Suðurlandi en á Norðurlandi.[1]
Lýsing
breytaEfnafræði
breytaEngar þekktar fléttusýrur finnast í skútagrýtu. Þalsvörun hennar er K-, C-, KC- og P-.[3][1]
Greining
breytaSkútagrýta er lík móagrýtu í útliti. Þær er hægt að greina í sundur á því að skútagrýta hefur fjögur gró í hverjum aski en móagrýta hefur átta minni gró í hverjum aski. Einnig er þalsvörun skútagrýtu KC- en móagrýta hefur þalsvörun KC+ í miðlagi vegna litunar fléttuefnisins methýlgýrófórats.[3][1]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
- ↑ Rambold, G. (ritstjóri; 2017). LIAS: A Global Information System for Lichenized and Non-Lichenized Ascomycetes[óvirkur tengill] (útgáfa desember, 2015). Í Roskov, Y., Abucay, L., Orrell, T., Nicolson, D., Bailly, N., Kirk, P. M., Bourgoin, T., DeWalt, R. E., Decock, W., De Wever, A., Nieukerken, E. van, Zarucchi, J., Penev, L. (ritstjórar; 2017). Species 2000 & ITIS Catalogue of Life. Leiden, Hollandi: Naturalis. ISSN: 2405-8858.
- ↑ 3,0 3,1 3,2 3,3 Flóra Íslands (án ártals). Skútagrýta - Solorina saccata. Sótt þann 1. desember 2017.