Rishi Sunak
Rishi Sunak (fæddur 12. maí 1980 í Southampton) er Breskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Bretlands frá 2022 til 2024. Hann var leiðtogi Breska íhaldsflokksins frá október 2022 til nóvember 2024.
Rishi Sunak | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 25. október 2022 – 5. júlí 2024 | |
Þjóðhöfðingi | Karl 3. |
Forveri | Liz Truss |
Eftirmaður | Keir Starmer |
Fjármálaráðherra Bretlands | |
Í embætti 13. febrúar 2020 – 5. júlí 2022 | |
Forsætisráðherra | Boris Johnson |
Forveri | Sajid Javid |
Eftirmaður | Nadhim Zahawi |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. maí 1980 Southampton, Hampshire, Englandi |
Þjóðerni | Breskur |
Stjórnmálaflokkur | Íhaldsflokkurinn |
Maki | Akshata Murty (g. 2009) |
Börn | 2 |
Háskóli | Oxford-háskóli (BA) Stanford-háskóli (MBA) |
Æviágrip
breytaSunak sam heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði við Oxford-háskóla og síðar MBA-viðskiptagráðu frá Stanford-háskóla í Kaliforníu. Hann starfaði meðal annars hjá Goldman-Sachs fjárfestingarbankanum eftir námsferilinn. [1]
Sunak hefur verið þingmaður frá 2015 og gegndi embætti fjármálaráðherra frá 2019 til 2020. Í júlí 2022 bauð hann sig fram til forsætisráðherra eftir að Boris Johnson sagði af sér en tapaði fyrir Liz Truss. Truss var ekki lengi í embætti og eftir stjórnarkreppu í október sama ár sagði hún af sér. Sunak hafði betur í leiðtogavali Íhaldsflokksins og varð fyrsti forsætisráðherra landsins af asískum ættum og sá yngsti síðan 1812.
Sunak lét efna til þingkosninga þann 4. júlí árið 2024 en í þeim kosningum galt Íhaldsflokkurinn afhroð á móti Verkamannaflokknum. Sunak tilkynnti í kjölfarið að hann myndi segja af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins.[2]
Einkahagir
breytaSunak er af indverskum ættum og er hindúi. Hann er giftur Akshata Murty, dóttur indversks milljarðamærings. Hjónin eru 222. ríkasta par Bretlands. Murty hefur verið gagnrýnd fyrir að telja erlendar tekjur af fyrirtækjum sínum ekki til skatts Í Bretlandi.
Tilvísanir
breyta- ↑ Rafn Ágúst Ragnarsson (11. júlí 2022). „Nærmynd af manninum sem gæti orðið næsti forsætisráðherra Bretlands“. DV. Sótt 24. október 2022.
- ↑ „Hættir sem formaður Íhaldsflokksins“. mbl.is. 5. júlí 2024. Sótt 5. júlí 2024.
Fyrirrennari: Liz Truss |
|
Eftirmaður: Keir Starmer |