Dick Cheney
46. varaforseti Bandaríkjanna
(Endurbeint frá Richard Cheney)
Richard Bruce „Dick“ Cheney (fæddur 30. janúar 1941) var 46. varaforseti Bandaríkjanna frá 2001 til 2009. Áður en hann tók við embætti varaforseta hafði hann gegnt ýmsum störfum bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera. Cheney gengdi stjórnunarstöðum í Bandaríska orkufyrirtækinu Halliburton og var m.a. stjórnarformaður fyrirtækisins um tíma. Hann var kjörinn árið 1978 sem þingmaður á Bandaríkjaþingi fyrir Wyoming fylki. Hann var varnarmálaráðherra undir George H.W. Bush og Starfsmannastjóri Hvíta hússins undir Gerald Ford. Cheney tók við varaforsetaembættinu þann 20. janúar 2001 af Al Gore en seinna kjörtímabili hans lauk 20. janúar 2009.
Dick Cheney | |
---|---|
Varaforseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 2001 – 20. janúar 2009 | |
Forseti | George W. Bush |
Forveri | Al Gore |
Eftirmaður | Joe Biden |
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna | |
Í embætti 21. mars 1989 – 20. janúar 1993 | |
Forseti | George H. W. Bush |
Forveri | Frank Carlucci |
Eftirmaður | Les Aspin |
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir Wyoming | |
Í embætti 3. janúar 1979 – 20. mars 1989 | |
Forveri | Teno Roncalio |
Eftirmaður | Craig L. Thomas |
Starfsmannastjóri Hvíta hússins | |
Í embætti 21. nóvember 1975 – 20. janúar 1977 | |
Forseti | Gerald Ford |
Forveri | Donald Rumsfeld |
Eftirmaður | Hamilton Jordan |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 30. janúar 1941 Lincoln, Nebraska, Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Lynne Vincent (g. 1964) |
Börn | Liz, Mary |
Háskóli | Háskólinn í Wyoming |
Starf | Stjórnmálamaður, athafnamaður, rithöfundur |
Undirskrift |
Fyrirrennari: Al Gore |
|
Eftirmaður: Joe Biden |