Ský
Ský er sýnilegur massi samþjappaðs vatns eða ískristalla í andrúmsloftinu á Jörðinni eða annarri reikistjörnu. Þau endurvarpa öllum sýnilegum bylgjulengdum ljóss og eru því hvít, en geta virðst grá eða jafnvel svört ef þau eru það þykk að ljós nær ekki í gegnum þau. Vatnsdropar í skýjum eru að jafnaði 0,01 mm í þvermál og verða því sýnilegir þegar þeir safnast saman og mynda ský.
Ský á öðrum reikistjörnum en Jörðinni eru oft úr öðrum efnum en vatni (t.d. metani) en það fer þó eftir umhverfisaðstæðum.
Skýjamyndun
breytaSký myndast þegar vatnsgufa í andrúmsloftinu myndast þá litlir vatnsdropar og ískristallar. Þetta gerist einkum á tvennskonar hátt:
1. Loftið kólnar og mettast. Þetta gerist þegar loftið kemur í tæri við kalt yfirborð eða yfirborð sem hefur kólnað af geislum. Auk þess getur loft kólnað vegna þess að það stígur. Fyrir því eru þrjár ástæður:
- Loftið þarf að rísa yfir hlý- eða köld skil
- Þar sem köldu lofti blæs yfir fjöll neyðist rakt loft til að rísa
- Vegna lóðstreymis sem leiðir til upphitunar yfirborðs jarðar (hlýnun yfir daginn)
2. Hitastig loftsins breytist ekki heldur tekur til sín meiri raka og mettast þannig.
Ský eru þung. Vatnið í venjulegu skýi getur vegað mörg milljón tonn en þar sem rúmmálið er líka mikið reynist nettó þéttleiki vatnsgufunnar það lítill að loftstreymi yfir og undir skýjunum getur haldið þeim uppi. Flest ský myndast þegar vatnsgufa þéttist í kringum þéttimiðju sem ýmist getur verið reykur, gas, aska eða salt. Í yfirmettuðum tilvikum geta vatnsdropar einnig virkað sem þéttimiðja. Flugslóðar eru dæmi um manngerð ský, sem myndast út útblæstri þotuhreyfla.
Gerðir skýja
breytaSký skiptast í háský, miðský, lágský og háreist ský.
Háský
breytaHáský eru í 6-12 km hæð, til þeirra teljast:
- Klósigar (Cirrus)
- Blika (Cirrostratus)
- Maríutása (Cirrocumulus)
- Skýjahetta eða -kúfur (Pileus)
- Flugslóði
Miðský
breytaMiðský eru í 2-6 km hæð, til þeirra teljast:
- Gráblika (Altostratus)
- Netjuský (Altocumulus)
- Regnþykkni (Nimbostratus)
- Bylgjunetja (Altostratus undulatus)
- Skýjaborgir (Altocumulus castellanus)
- Linsuský eða vindskafin netjuský (Altocumulus lenticularis)
Lágský
breytaLágský eru í 0-2 km hæð, til þeirra teljast:
- Þokuský (Stratus)
- Bólstraský eða bólstrar (Cumulus)
- Flákaský (Stratocumulus)
Háreist ský
breytaHáreist ský eru í 0-12 km hæð, til þeirra teljast:
- Skúraský (Cumulonimbus)
- Skúraklakkar (Cumulunimbus calvus))
- Skúraflókar (Cumulonimbus cappilatus)
- Steðjaský (Cumulonimbus incus)
- Gosský (Pyrocumulus)
Ský ofan veðrahvolfs
breytaÖnnur ský
breyta- Júgurský (Altocumulus Mammatus)
- Hrafnar (Pannus)
- Skýjaslæður (Virga)
Tengt efni
breytaHeimildir
breyta- „Ský“. Sótt 26. júlí 2008.
- „Fróðleikur um veður“. Sótt 24. ágúst 2008.
Tenglar
breyta