Jack Nicholson
John Joseph Nicholson (f. 22. apríl 1937 í Neptune, New Jersey), best þekktur sem Jack Nicholson, er bandarískur leikari.
Jack Nicholson | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | John Joseph Nicholson 22. apríl 1937 Neptune, New Jersey, USA |
Maki | Sandra Knight (1962-1968) (skilin) 1 barn |
Helstu hlutverk | |
George Hanson í Easy Rider Robert Eroica Dupea í Five Easy Pieces Billy “Bad Ass” Buddusky í The Last Detail J.J. “Jake” Gittes í Chinatown Randle Patrick McMurphy í One Flew Over the Cuckoo's Nest Jack Torrance í The Shining Eugene O'Neill í Reds Garrett Breedlove í Terms of Endearment Charley Partanna í Prizzi's Honor Francis Phelan í Ironweed Jack Naiper/Jókerinn í Batman Col. Nathan R. Jessep í A Few Good Men Melvin Udall í As Good as It Gets Warren Schmidt í About Schmidt Francis "Frank" Costello í The Departed | |
Óskarsverðlaun | |
Besti leikari 1975 One Flew Over the Cuckoo's Nest 1997 As Good As It Gets Besti leikari í aukahlutverki 1983 Terms of Endearment | |
Golden Globe-verðlaun | |
Besti leikari (drama) 1975 Chinatown 1976 One Flew Over the Cuckoo's Nest 2003 About Schmidt Besti leikari (tónlistar- eða gamanmynd) 1986 Prizzi's Honor 1998 As Good as It Gets Besti leikari í aukahlutverki 1984 Terms of Endearment Cecil B. DeMille-verðlaunin (1999) | |
BAFTA-verðlaun | |
Besti leikari 1974 Chinatown ; The Last Detail 1976 One Flew Over the Cuckoo's Nest Besti leikari í aukahlutverki 1982 Reds | |
Screen Actors Guild-verðlaun | |
Besti leikari 1997 As Good as It Gets | |
AFI-verðlaun | |
Verðlaun fyrir framúrskarandi frammistöðu um ævina (1994) |
Ævi
breytaYngri ár
breytaNicolson fæddist á Jersey Shore Medical Center í Neptune, New Jersey. Móðir hans hét June Frances Nicholson (betur þekkt sem June Nilson) sem starfaði sem fatafella.[1] Þann 16. október 1936, 6 mánuðum áður en Nicholson fæddist hafði June gifst Donald Furcillo í Elkton, Maryland.[2] Þó svo að Donald Furcillo hafi staðfest að hann sé faðir Nicholson heldur Patrick McGilligan því fram að raunverulegi faðir Nicholsons sé Eddie King, umboðsmaður June.[3] Nicholson hefur neitað að úr sér verði skoðað DNA-sýni til að athuga hver hans raunverulegi faðir sé.
Móðir June, Ethel, krafðist þess að taka Nicholson að sér í fóstur svo að June gæti einbeitt sér að starfsferli sínum.[3] Nicholson hélt að afi hans og amma, Ethel May Rhoads og John J. Nicholson, væru foreldrar hans. Nicholson komst að því að svo var ekki árið 1974, þegar hann var 37 ára gamall. Blaðamaður frá „Time Magazine“ komst að þessu við skrif á grein um líf Nicholsons. Þá höfðu bæði móðir hans og amma látist, en þær voru þær einu sem vissu hver raunverulegi faðir hans var.[4]
Nicholson ólst upp kaþólskur,[5] en í viðtali við Vanity Fair árið 1992 sagðist hann ekki trúa á Guð enn.[6]
Upphaf leiklistarferils
breytaÞegar Nicholson flutti til Hollywood var honum boðið starf hjá teiknimyndarisanum Hanna-Barbera, en hann neitaði. Hann vildi heldur verða leikari.[7]
Nicholson hóf feril sinn sem leikari, handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi. Hann starfaði hjá og með Roger Corman, ásamt öðrum. Hann skrifaði handritin og lék lítil hlutverk í myndunum The Cry Baby Killer (1958), The Little Shop of Horrors (1960), The Raven (1963) og The Terror (1963). Í The Terror vann hann með Sandra Knight, sem hann giftist síðar.
Leiðin til frama
breytaNicholson hlaut sinn fyrsta Óskar fyrir leik sinn í kvikmyndinni One Flew Over the Cuckoo's Nest sem besti leikari í aðalhlutverki árið 1975. Aðrar stórar kvikmyndir sem Nicholson hefur leikið í eru The Shining (1980), Batman (1989), As Good as It Gets (1997), About Schmidt (2002), Anger Management (2003), The Departed (2006)
Einkalíf
breytaSamkvæmt tímaritinu Maxim hefur Nicholson sofið hjá yfir 2.000 kvenmönnum[8] Hann á 5 börn með 4 mismunandi konum en hefur aðeins verið giftur einu sinni.[9]
Börn hans eru:
- Jennifer Nicholson (f. 1963) með Sandra Knight (giftur frá 17. júní 1962 – 8. ágúst 1968)
- Caleb Goddard (f. 1970) með Susan Anspach.
- Honey Hollman (f. 1981) með Winnie Hollman.
- Lorraine Nicholson (f. 1990) og Raymond Nicholson (f. 1992) með Rebecca Broussard.
Lengsta sambandið hans spannaði yfir 17 ára tímabil, en það var með leikkonunni Anjelica Huston, dóttir kvikmyndaleikstjórans John Huston. Sambandinu lauk þegar Anjelicu bárust fréttir af því að Rebecca Broussard væri ólétt eftir Jack.
Verðlaun og tilnefningar
breytaNicholson hefur verið tilnefndur fyrir leik (aðal- eða aukahlutverk) á fimm mismunandi áratugum: 7. áratug 20. aldar, 8. áratug 20. aldar, 9. áratug 20. aldar, 10. áratug 20. aldar og 1. áratug 21. aldar. Aðeins einn leikari hefur afrekað það sama, Michael Caine.
Nicholson hefur verið tilnefndur 12 sinnum (8 sinnum fyrir aðallhlutverk og 4 sinnum fyrir aukahlutverk). Hann hefur fengið flestar tilnefningar karlleikara í sögu Óskarsins. Hann hefur unnið Óskarinn samtals þrisvar sinnum.
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Easy Rider (1969)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Five Easy Pieces (1970)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, The Last Detail (1973)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Chinatown (1974)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, One Flew Over the Cuckoo's Nest (1975)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Reds (1981)
- Hlaut: Besti leikari í aukahlutverki, Terms of Endearment (1983)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Prizzi's Honor (1985)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Ironweed (1987)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, A Few Good Men (1992)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, As Good as It Gets (1997)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, About Schmidt (2002)
BAFTA-verðlaunin
breyta- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Easy Rider (1970)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, The Last Detail (1975)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, Chinatown (1975)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, One Flew Over the Cuckoo's Nest (1977)
- Hlaut: Besti leikari í aukahlutverki, Reds (1983)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Batman (1990)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, About Schmidt (2003)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, The Departed (2007)
Golden Globe-verðlaunin
breyta- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Easy Rider (1969)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Five Easy Pieces (1970)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Carnal Knowledge (1971)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), The Last Detail (1973)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Chinatown (1974)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), One Flew Over the Cuckoo's Nest (1975)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Reds (1981)
- Hlaut: Besti leikari í aukahlutverki, Terms of Endearment (1983)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), Prizzi's Honor (1985)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Ironweed (1987)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), Batman (1989)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, A Few Good Men (1992)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Hoffa (1992)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), As Good as It Gets (1997)
- Hlaut: Cecil B. DeMille-verðlaunin (1999)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), About Schmidt (2002)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), Something's Gotta Give (2003)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, The Departed (2006)
Screen Actors Guild-verðlaunin
breyta- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, As Good as It Gets (1997)
AFI-verðlaunin
breytaÁrið 1994 hlaut Nicholson AFI-verðlaunin fyrir leik um ævina.
Kvikmyndaferill
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Young Jack Nicholson: Auspicious Beginnings, Eve Berliner, 2001. Skoðað 7. júlí 2007
- ↑ Marriage certificate of June Nilson and Donald Furcillo, Young Jack Nicholson: Auspicious Beginnings, Eve Berliner, 2001. Skoðað 7. júlí 2007.
- ↑ 3,0 3,1 http://www.cigaraficionado.com/Cigar/CA_Profiles/People_Profile/0,2540,21,00.html Geymt 31 mars 2010 í Wayback Machine , Skoðað 7. júlí 2007.
- ↑ http://www.jacknicholson.org/1984RollingStone.html Geymt 21 október 2008 í Wayback Machine. Skoðað 7. júlí 2007
- ↑ http://www.adherents.com/people/pn/Jack_Nicholson.html Geymt 9 október 2015 í Wayback Machine. Skoðað 7. júlí 2007
- ↑ https://web.archive.org/web/20060508105408/http://www.ronaldbrucemeyer.com/rants/0422b-almanac.htm. Skoðað 7. júlí 2007
- ↑ McGilligan, P.: Jack's Life. W.W. Norton & Company, 1994
- ↑ http://www.nydailynews.com/05-18-2006/news/story/418764p-353685c.html Geymt 4 mars 2007 í Wayback Machine. Skoðað 7. júlí 2007
- ↑ http://www.imdb.com/name/nm0000197/bio. Skoðað 7. júlí 2007
Tenglar
breyta- Jack Nicholson á Internet Movie Database
- Jack Nicholson á Notable Names Database
- Jack Nicholson Geymt 4 júlí 2007 í Wayback Machine á Yahoo! Movies
- Rolling Stone viðtal við Jack Nicholson Geymt 6 mars 2008 í Wayback Machine
- Aðdáendasíða Jack Nicholson[óvirkur tengill]
- Jack Nicholson Geymt 22 júlí 2011 í Wayback Machine á TV.com