Jiddíska
Jiddíska (ייִדיש yidish eða אידיש idish, bókstaflega „gyðingalegur“) er vesturgermanskt mál talað sem fyrsta mál af um 200 þúsund manns í Mið- og Austur-Evrópu, Bandaríkjunum og Ísrael, og af um það bil tveimur milljónum sem annað mál. Jiddíska er rituð með hebreska stafrófinu.
Jiddíska ייִדיש yidish | ||
---|---|---|
Málsvæði | Úkraína, Ísrael, Bandaríkin, Belgía, Kanada, Rússland, Pólland, Þýskaland, Svíþjóð, Moldóva, Rúmenía | |
Fjöldi málhafa | 200.000 | |
Sæti | ekki meðal 100 efstu | |
Ætt | Indóevrópskt
Germanskt | |
Skrifletur | Hebreska stafrófið | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | yi
| |
ISO 639-2 | yid
| |
SIL | yid
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Þetta mál má rekja allt til 9. og 10. aldar þegar gyðingar frá Frakklandi og Norður-Ítalíu tóku að setjast að í talsverðu mæli í Vestur-Þýskalandi, einkum Rínarlöndum. Töluðu þeir rómanskar mállýskur þeirra landsvæða sem þeir komu frá en þær lituðust smám saman svo mjög af þýsku að nýtt mál varð til sem telst germanskt að málfræðilegri byggingu auk þess sem orðaforðinn er að verulegu leyti úr þýsku kominn.
Málfræði
breytaMálfræði jiddísku svipar um flest til þýsku. Nafnorð hafa þrjú kyn og beygjast í tölum og föllum. Flest nafnorð hafa þó aðeins tvö fallform, nefnifall og eignarfall. Algengast er að nafnorð myndi fleirtölu með -s eða -es, en aðrar fleirtöluendingar eru -er, -im, -ekh og -kh. Sum nafnorð hafa enga fleirtöluendingu en skipta um sérhljóð í stofni. Lýsingarorð beygjast eftir kyni, tölu og falli.
Ólíkt þýsku er þátið sagnorða ekki sérstök beygingarmynd heldur sett saman með hjálparsögn, venjulega habn „hafa“ en stundum zayn „vera“.