Vesturgermönsk tungumál
Vesturgermönsk tungumál eru stærsti af þremur hefðbundnum undirflokkum germönsku málanna og er þar átt við mál eins og ensku, hollensku og afríkönsku, þýsku, frísnesk tungumál og jiddísku.
Hinir tveir hefðbundnu undirflokkarnir eru norður- og austurgermönsk mál.