Hraunhellir

Hellir myndaður í eldfjallabergi
(Endurbeint frá Hraunrásir)

Hraunhellar eru alls konar hellar í hrauni þó aðallega 'hraunrásir' neðan yfirborðs jarðar.

Thurston hraunhellirinn á Hawaii, með storkuborðum
Hraunhellir á Réunion
Hraunhellir í Suður-Kóreu
Víðgelmir með ísmyndun
Hraunhellirinn Leiðarendi
Leiðarendi, spenar

Skilgreiningar

breyta

Hraunhellir er „almyrkt holrúm í hrauni“[1].

Hraunhellar geta verið hellar af náttúrulegum uppruna eins og hraunrásir (t.d. Surtshellir), hellar í hraundrýlum og hraunbólum (finnast td. í Aðaldal), sprunguhellar (sjá Grjótagjá), gervigígahellar og gíghellar líkt og Þríhnúkagígur í Bláfjöllum. [1]"Hraunhellar geta einnig myndast við svokallaðan troðhól, þá treðst kvika úr eldfjalli undir storknað hraunyfirborðið og lyftir því, þannig að holrými myndast."[2]Sjávarrof getur líka myndað hraunhella þegar hraunið er við sjávarsíðuna, t.d. á Hellnum á Snæfellsnesi.

Til þess að teljast hellir er gjarnan við það miðað að holrýmið sé a.m.k. 20 metrar að lengd[2] en annars er talað um skúta eða hraunskúta.

Hraunrásir

breyta

Í flestum tilfellum er talað um hraunrásir í þessum samhengi.[3][2]

Aðallega finnast hraunrásir í helluhraunum þar sem efsta lag þunnfljótandi basaltkviku hefur storknað en bráðið hraunið haldið áfram að streyma í afmörkuðum farvegum undir yfirborðinu. „Rásirnar eru ýmist í gígveggjum eða í efri hluta hins nýrunna hrauns sem þegar hefur storknað að hluta. Einnig geta slíkar rásir eða hraungöng myndast mun utar í helluhraunum.“[4] Þegar eldgosið rénar sjatnar í þessum farvegum og eftir standa langir hellar. Stundum eru þeir ennþá hálffylltir af hrauni.[1] Hallinn í göngunum þarf að vera nægur, til að kvikan geti runnið úr göngunum eftir að ný hættir að berast að.[2]

Litadýrð í mörgum hraunhellum er vegna útfellinga og efnasambanda sem leka úr veggjunum.[2]

Hraunhellir finnst líka í Holuhrauni.[5]

Myndanir í hraunhellum

breyta

Margs konar myndanir finnast í hraunhellum, þar á meðal dropasteinar (dropsteinar), kleprasteinar, hraunfossar og hraunstrá, stundum líka mannvistarleifar.[1] Myndunum má skipta í þrjá flokka: 1) Myndanir sem stafar af rennsli hraunkvikunnar í hellinum, t.d. storkuborð; 2) Afgangsbráð sem lekur inn í hellinn, t.d. dropsteinar; 3) Myndanir sem eru ekki úr hrauni eins og ísmyndanir, sandkastalar, dropasteinar (úr kalki) o.s.frv.[6]

Dropsteinar og hraunstrá

breyta

Mest áberandi eru dropsteinarnir úr hraunbráð[4]. Þeir myndast þegar hraun er hálfstorknað og svokölluð afgangsbráð er á hreyfingu í æðum inni í hrauninu og þrýstist út í holrúm í hrauninu og þar með inn um veggi og loft hellanna. Afgangsbráð sem lekur niður úr hellisloftinu myndar 'hraunstrá og spena, en á gólfinu hlaða droparnir upp dropsteina.“[7]

Dæmi um hraunhella á Íslandi eru Surtshellir, Stefánshellir, Víðgelmir, Raufarhólshellir og mikið fleiri (sjá lesefni).

Hraunhellar eru einnig til á eldvirkum svæðum í öðrum löndum og heimsálfum eins og á Hawaii, í Suður-Koreu, Ítalíu og Spáni.

Lesefni

breyta
  • Björn Hróarsson: Hellahandbókin. Leiðsögn um 77 íslenska hraunhella. Reykjavík 2008.

Sjá líka

breyta

Tenglar

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. 1,0 1,1 1,2 1,3 Björn Hróarsson: Hellahandbókin. Leiðsögn um 77 íslenska hraunhella. Reykjavík 2008, bls. 19
  2. 2,0 2,1 2,2 2,3 2,4 [https://skemman.is/bitstream/1946/25061/1/Inga%20Hr%C3%B6nn%20Sverrisd%C3%B3ttir%20BA-%20ritger%C3%B0.pdf Inga Hrönn Sverrisdóttir: Hraunhellar á Íslandi. Getur verndun náttúruminja og ferðamennska átt samleið? Lokaritgerð til BA gráðu í ferðamálafræði, Háskólinn á Hólum Vor 2016
  3. Sigurður Steinþórsson. „Hvernig myndast hraunhellar? “ Vísindavefurinn, 29. september 2003. Sótt 14. ágúst 2020. http://visindavefur.is/svar.php?id=3763.
  4. 4,0 4,1 Ari Trausti Guðmundsson, Ragnar Th. Sigurðsson: Íslenskur jarðfræðilykill. Reykjavík 2004, bls. 108-109
  5. [Pedersen, G. B. M., Höskuldsson, A., Dürig, T., Thordarson, T., Jónsdóttir, I.,Riishuus, M. S., Schmith, J. (2017). Lava field evolution and emplacement dynamics of the 2014–2015 basaltic fissure eruption at Holuhraun, Iceland.Journal of Volcanology and Geothermal Research, 340, 155-169. doi:https://doi.org/10.1016/j.jvolgeores.2017.02.027]
  6. Björn Hróarsson: Hellahandbókin. Leiðsögn um 77 íslenska hraunhella. Reykjavík 2008, bls. 23-31
  7. Björn Hróarsson: Hellahandbókin. Leiðsögn um 77 íslenska hraunhella. Reykjavík 2008, bls. 29