Georg Wilhelm Friedrich Hegel
þýskur heimspekingur (1770-1831)
Georg Wilhelm Friedrich Hegel (27. ágúst 1770 í Stuttgart í Þýskalandi – 14. nóvember 1831 í Berlín í Þýskalandi) var þýskur heimspekingur fæddur í Stuttgart í Württemberg, í dag í suðvestur Þýskalandi.
Vestræn heimspeki Heimspeki 19. aldar, | |
---|---|
Nafn: | Georg Wilhelm Friedrich Hegel |
Fæddur: | 27. ágúst 1770 (í Stuttgart í Þýskalandi) |
Látinn: | 14. nóvember 1831 (61 árs) (í Berlín í Þýskalandi) |
Skóli/hefð: | Þýsk hughyggja |
Helstu ritverk: | Fyrirbærafræði andans |
Helstu viðfangsefni: | frumspeki, réttarheimspeki, fagurfræði, trúarheimspeki, heimspeki sögunnar, heimspekisaga, þekkingarfræði, rökfræði |
Markverðar hugmyndir: | hughyggja, þráttarefnishyggja |
Áhrifavaldar: | Aristóteles, Anselm, René Descartes, Baruch Spinoza, Jean-Jacques Rousseau, Immanuel Kant, Jacob Böhme, Johann Gottlieb Fichte, Friedrich Wilhelm Joseph von Schelling |
Hafði áhrif á: | Søren Kierkegaard, Ludwig Andreas Feuerbach, Karl Marx, Friedrich Engels, Bruna Bauer, F.H. Bradley, Vladímír Lenín, Lev Trotskíj, Jean-Paul Sartre, Karl Barth, Hans Küng, Hans-Georg Gadamer, Jürgen Habermas |
Áhrif hans hafa verið þónokkur á margvíslega hugsuði, þeirra á meðal hafa verið aðdáendur hans (F.H. Bradley, Sartre) og andstæðingar hans (Kierkegaard, Schopenhauer, Heidegger, Schelling). Hann er einkum þekktur fyrir tilraun sína til að setja fram alltumvefjandi verufræðilegt kerfi frá rökréttum upphafspunkti.
Helstu ritverk
breyta- Munurinn á heimspekikerfum Fichtes og Schellings (Die Differenz des Fichteschen und Schellingschen Systems der Philosophie) 1801
- Hver hugsar sértekið? (Wer denkt abstrakt?) 1807
- Formáli að Fyrirbærafræði andans (Vorrede zur Phänomenologie des Geistes) 1807
- Fyrirbærafræði andans (Phänomenologie des Geistes) 1807
- Rökvísindin (Wissenschaft der Logik) 1812 – 1816
- Alfræði heimspekilegra vísinda (Enzyklopädie der philosophischen Wissenschaften) 1817 – 1830
- Frumatriði réttarheimspekinnar (Grundlinien der Philosophie des Rechts) 1820
- Heimspeki sögunnar (Philosophie der Geschichte)
- Trúarheimspeki (Philosophie der Religion)
- Fyrirlestrar um fagurfræði (Vorlesungen über die Ästhetik)
- Fyrirlestrar um sögu heimspekinnar (Vorlesungen über die Geschichte der Philosophie)
Frekari fróðleikur
breyta- Frederick C. Beiser (ritstj.), The Cambridge Companion to Hegel (Cambridge: Cambridge University Press, 1993)
Tenglar
breyta- „Hver var Hegel og hvert var framlag hans til heimspekinnar?“. Vísindavefurinn.
- Stanford Encyclopedia of Philosophy: „Georg Wilhelm Friedrich Hegel“
- Stanford Encyclopedia of Philosophy: „Hegel's Aesthetics“
- The Internet Encyclopedia of Philosophy: „Georg Wilhelm Friedrich Hegel: Social and Political Thought“