Ludwig Andreas Feuerbach
Ludwig Andreas Feuerbach (28. júlí 1804 – 13. september 1872) var þýskur heimspekingur, sem var undir miklum áhrifum frá G.W.F. Hegel. Hann var trúleysingi og hélt því fram að kristnin væri dauð kennisetning. Hann gagnrýndi hughyggju Hegels og var þar með orðinn talsmaður efnishyggju. Kenningar hans ásamt þráttarhyggju Hegels urðu helstu uppsprettur að kenningum Marxs og Engels um sögulega efnishyggju. Hann hafði m.a. áhrif á þýska guðfræðinginn David Friedrich Strauss.
Vestræn heimspeki Heimspeki 19. aldar | |
---|---|
Nafn: | Ludwig Andreas Feuerbach |
Fæddur: | 28. júlí 1804 |
Látinn: | 13. september 1872 (68 ára) |
Skóli/hefð: | Ungu hegelistarnir |
Helstu ritverk: | Eðli kristninnar |
Helstu viðfangsefni: | trúarbrögð |
Markverðar hugmyndir: | trúarbrögð sem tjáning á innra eðli mannsins |
Áhrifavaldar: | Georg Hegel |
Hafði áhrif á: | Karl Marx, Friedrich Engels, Joseph Dietzgen |
Ævi
breytaLudwing fæddist í Landshut í Bavaríu í Þýskalandi og var sonur Paul Feuerbach, þekkts dómara.
Verk
breyta- Das Wesen des Christentums, 1841
- Grundsätze der Philosophie der Zukunft, 1843
- Das Wesen der Religion, 1845
- Vorlesungen über das Wesen der Religion, 1851
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Ludwig Andreas Feuerbach“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 5. apríl 2006.