Þjóðvarnarfélagið
Þjóðvarnarfélagið voru íslensk félagasamtök stofnuð í Reykjavík 1. október 1946 til þess að mótmæla Keflavíkursamningnum sem íslensk stjórnvöld gerðu við bandarísk stjórnvöld strax eftir seinni heimsstyrjöld og hernám Íslands. Helsti framámaður félagsins var Sigurbjörn Einarsson þá dósent í guðfræði við Háskóla Íslands, seinna prestur og biskup Íslands. Félaginu var breytt í landsfélag 3. maí 1949 og nefndist þá Þjóðvarnarfélag Íslendinga. Það gaf út blaðið Þjóðvörn. Það hætti starfsemi 1951 og seinna var Þjóðvarnarflokkurinn stofnaður árið 1953.
Meðal annarra þekktra einstaklinga sem tóku þátt í starfsemi félagsins voru Hannibal Valdimarsson, Gylfi Þ. Gíslason, Jónas Haralz og Rannveig Þorsteinsdóttir.
Sigurbjörn Einarsson hélt ræðu á fullveldisdeginum, 1. desember 1948, að beiðni háskólanema við Háskóla Íslands þar sem hann mælti sterklega gegn þátttöku Íslendinga í hernaðarbandalögum.[1] Þetta var fjórum mánuðum áður en Ísland varð að stofnaðila Atlantshafsbandalagsins og er talið marka aukna mótstöðu meðal almennings. Þegar Alþingi samþykkti inngöngu í Atlantshafsbandalagið 30. mars 1949 kom til óeirða á Austurvelli.
Tilvitnanir
breyta- ↑ Haldi hverr vöku sinni, ræða Sigurbjörns Einarssonar frá 1. desember 1948 birt í Þjóðviljanum 3. desember 1948
Tenglar
breyta- Sagan | Dagfari Geymt 21 mars 2013 í Wayback Machine
- Haldi hverr vöku sinni, ræða Sigurbjörns Einarssonar frá 1. desember 1948 birt í Þjóðviljanum 3. desember 1948
- Nýr borgarafundur gegn Bandaríkjasamningnum, frétt í Alþýðublaðinu 5. október 1946
- „Fína fólkið í Þjóðvörn nafngreinir sig“, frétt í Morgunblaðinu 29. apríl 1949
- Aðalfundur Þjóðvarnarfélagsins, frétt í Tímanum 30. nóvember 1946
- Heimtar í einu hljóði uppsögn herstöðvasamningsins og heiðarlega framkvæmd hans þangað til, Þjóðviljinn 18. nóvember 1947
- Reynslan er ólýgnust, Þjóðviljinn 24. júní 1953