Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 1921

Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 1921 var fimmsta Suður-Ameríkukeppnin í knattspyrnu. Hún var haldin í Buenos Aires í Argentínu dagana 2. til 30. október. Keppnisliðin fjögur mættu hvert öðru í einfaldri umferð. Heimamenn urðu meistarar í fyrsta sinn og unnu alla sína leiki.

Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 1921
Upplýsingar móts
MótshaldariArgentína
Dagsetningar2. til 30. október
Lið4
Leikvangar1
Sætaröðun
Meistarar Argentína (1. titill)
Í öðru sæti Brasilía
Í þriðja sæti Úrúgvæ
Í fjórða sæti Paragvæ
Tournament statistics
Leikir spilaðir6
Mörk skoruð14 (2,33 á leik)
Markahæsti maður Julio Libonatti
(3 mörk)
1920
1922

Leikvangurinn

breyta
Buenos Aires
Estadio Sportivo Barracas
Fjöldi sæta: 30.000
 

Keppnin fór fram í skugga harðra deilna milli Argentínska knattspyrnusambandins og nýstofnaðs Knattspyrnusambands argentínskra áhugamanna sem hafði á að skipa flestum sterkustu félagsliðum landsins öðrum en Boca Juniors. Síðarnefndu samtökin höfðu fengið boð frá Knattspyrnusambandi Síle um að senda úrvalslið á mót þar í landi. Boðið var hrein ögrun í garð Argentínska knattspyrnusambandsins sem krafðist þess af álfusambandinu CONMEBOL að Sílemönnum yrði harðlega refsað.

Eftir mikið þóf varð niðurstaðan sú að Síle þurfti ekki að sæta refsingu en lið þeirra tók ekki þátt í keppninni í Argentínu. Það sama gilti um aðildarfélög Knattspyrnusambands áhugamanna sem stofnað höfðu til sinnar eigin deildarkeppni sem fór fram samhliða mótinu, til að mynda var heil umferð í deildinni sett niður sama dag og úrslitaleikur mótsins.

Þrátt fyrir andstöðu stórs hóps argentínska knattspyrnusamfélagsins sló mótið í gegn og fjöldi áhorfenda mætti á leikina. Ríkjandi meistarar Brasilíu mættu til leiks með mun lakara lið en árið áður, en að kröfu forseta landsins höfðu þeldökkir leikmenn verið bannaðir í liðinu, þar á meðal skærasta stjarnan Arthur Friedenreich.

Óvænt tap Úrúgvæ gegn nýliðum Paragvæ gerði það að verkum að úrúgvæska liðið varð að vinna heimamenn í lokaleiknum til að knýja fram oddaleik. Leiknum lauk með sigri Argentínu og að leik loknum ruddust áhorfendur inn á völlinn og báru leikmenn beggja liða á gullstól. Sigurinn gerði það að verkum að argentínska þjóðin tók ástfóstri við landsliðið, en liðin sem sniðgengið höfðu keppnina urðu fyrir hörðu ámæli.

Keppnin

breyta
Sæti Lið L U J T Sk Fe Mm Stig
1   Argnetína 3 3 0 0 5 0 +5 6
2   Brasilía 3 1 0 2 4 3 +1 2
3   Úrúgvæ 3 1 0 2 3 4 -1 2
4   Paragvæ 3 1 0 2 2 7 -5 2
2. október
  Argentína 1-0   Brasilía
Áhorfendur: 30.000
Dómari: Ricardo Vallarino, Úrúgvæ
Libonatti 27
9. október
  Paragvæ 2-1   Úrúgvæ
Dómari: Gerónimo Rapossi, Argentínu
Rivas 9, López 66 Piendibene, 83
12. október
  Brasilía 3-0   Paragvæ
Dómari: Ricardo Vallarino, Úrúgvæ
Machado 21, 44, Candiota 46
16. október
  Argentína 3-0   Paragvæ
Dómari: Ricardo Vallarino, Úrúgvæ
Libonatti 1, Saruppo 71, Echeverría, 76
23. október
  Úrúgvæ 2-1   Brasilía
Dómari: Víctor Cabañas Saguier, Paragvæ
Romano 1, 8 Zezé 53
30. október
  Argentína 1-0   Úrúgvæ
Áhorfendur: 40.000
Dómari: Pedro Santos, Brasilíu
Libonatti 57

Markahæstu leikmenn

breyta
3 mörk
2 mörk

Heimildir

breyta