Afturbeygt fornafn
Afturbeygða fornafnið (skammstafað sem a.fn. eða ab.fn.) er fornafn sem er ekki til í nefnifalli[1] heldur beygist það bara í aukaföllum (þolfalli, þágufalli og eignarfalli) og vísar það til frumlagsins í setningunni.
Afturbeygða fornafnið í mörgum tungumálum
breytaÍ íslensku
breytaAðeins er til eitt afturbeygt fornafn í íslensku eða orðið sig. Beygist það eins í öllum kynjum (hún elskar sig, hann elskar sig, það elskar sig) og báðum tölum (hann stöðvaði sig, þeir stöðvuðu sig).
Afturbeygðu fornöfnin eru stundum flokkuð svona:[2]
- Afturbeygt persónufornafn: sig
- Afturbeygt eignarfornafn: sinn
- Samsett afturbeygt fornafn: sjálfan sig
Eintala og fleirtala | |||
---|---|---|---|
karlkyn (kk.) | kvenkyn (kvk.) | hvorugkyn (hk.) | |
Nefnifall | (hann/hún/það/þeir/þær/þau) | ||
Þolfall | sig | ||
Þágufall | sér | ||
Eignarfall | sín |
Dæmi
breytaAfturbeygða fornafnið vísar aftur til þriðju persónu sem áður hefur verið tiltekin og af því er nafn þess dregið;
- Hann talar um sig. (kk. et.)
- Þeir tala um sig. (kk. ft.)
- Stúlkan flýtti sér heim. (kvk. et.)
- Þær flýttu sér heim. (kvk. ft.)
- Barnið naut sín. (hk. et.)
- Börnin nutu sín. (hk. ft.)
„Afturbeygða eignarfornafnið“
breytaSumir málfræðingar telja eignarfornafnið sinn eiga heima í flokki afturbeygðra fornafna þar eð það vísar aftur til þriðju persónu. Þessi skilgreining er umdeild og á sér ekki hefð í íslenskri málfræði. Sinn er þó stundum kallað „afturbeygt eignarfornafn“.
Eintala | Fleirtala | |||||
---|---|---|---|---|---|---|
karlkyn (kk.) | kvenkyn (kvk.) | hvorugkyn (hk.) | karlkyn (kk.) | kvenkyn (kvk.) | hvorugkyn (hk.) | |
nefnifall | sinn | sín | sitt | sínir | sínar | sín |
þolfall | sinn | sína | sitt | sína | sínar | sín |
þágufall | sínum | sinni | sínu | sínum | sínum | sínum |
eignarfall | síns | sinnar | síns | sinna | sinna | sinna |
Í latínu
breytaAðeins er til eitt afturbeygt fornafn í latínu og er það orðið se. Beygist það í öllum föllum nema nefnifalli og ávarpsfalli.
Eintala og fleirtala | |||
---|---|---|---|
karlkyn (kk.) | kvenkyn (kvk.) | hvorugkyn (hk.) | |
Nefnifall | (is/ea/id/eī/iī/eae/ea) | ||
Ávarpsfall | (is/ea/id/eī/iī/eae/ea) | ||
Þolfall | sē, sēsē | ||
Eignarfall | suī | ||
Þágufall | sibi | ||
Sviptifall | sē, sēsē | ||
Staðarfall | sē, sēsē |
Dæmi
breyta- per se (í sjálfu sér, út af fyrir sig)