Nálgunarhljóð
Nálgunarhljóð er málhljóð sem er á millistigi milli önghljóðs og sérhljóðs. Nálgunarhljóð myndast þegar talfærin liggja þannig að þau skapa þrengingu í munnholinu sem veldur heyranlegum núningi. Í þessum hljóðaflokki eru hljóð eins og [l] (eins og í lækka), [ɹ] (eins og í enska orðinu rest), og hálfsérhljóð á borð við [j] og [w] (eins og í jól og enska orðinu west).
Hálfsérhljóð
breytaSum nálgunarhljóð líkjast sérhljóðum varðandi myndunarhátt og oft eru þau kölluð hálfsérhljóð. Samsvörun milli hálfsérhljóða og sérhljóða er svo sterk að í mörgum tungumálum svara sömu hálfsérhljóðin til sömu sérhljóðanna.
Í mörgum tungumálum skiptast hálfsérhljóð og sérhljóð á eftir hljóðfræðilegu samhengi, eða af málfræðilegum ástæðum, eins og í hljóðskiptum. Sumir hljóðfræðingar greina á milli sérhljóða og nálgunarhljóða samkvæmt stöðu þeirra í ákveðnu atkvæði.
Eftirfarandi er listi yfir sérhljóð og samsvarandi nálgunarhljóðin (hálfsérhljóð).
Sérhljóð | Samsvarandi nálgunarhljóð |
Myndunarstaður | Dæmi |
---|---|---|---|
[i] | [j] | Framgómhljóð | spænska amplío („ég lengi“) sbr. ampliamos („við lengjum“) |
[y] | [ɥ] | Vara- og framgómhljóð | franska aigu („skarpur“) sbr. aiguille („nál“) |
[ɯ] | [ɰ] | Gomhljóð | kóreska 쓰다 sseuda [s͈ɯda] („að vera klædd(ur) í“) sbr. 씌우다 ssuiuda [s͈ɰiuda] („að klæða e-n í“) |
[u] | [w] | Vara- og gómhljóð | spænska actúo („ég geri“) sbr. actuamos („við gerum“) |
[ɚ] | [ɻ] | Rishljóð | bandarísk enska waiter („þjónn“) sbr. waitress („þjónustustúlka“) |
[ɑ] | [ʕ̞] | Kokhljóð | (dæmi vantar) |
Flokkun
breytaMiðmæld nálgunarhljóð
breyta- [β̞] tvívaramælt nálgunarhljóð
- [ʋ] tannvaramælt nálgunarhljóð
- [ð̞] tannmælt nálgunarhljóð
- [ɹ] tannbergsmælt nálgunarhljóð
- [ɻ] rismælt nálgunarhljóð
- [j] framgómmælt nálgunarhljóð
- [ɰ] gómfyllumælt nálgunarhljóð
- [ʁ̞] vara- og gómmælt nálgunarhljóð
- [ʕ̞] úfmælt nálgunarhljóð
- [ʢ̞] kokmælt nálgunarhljóð
Hliðmæld nálgunarhljóð
breyta- [l] tannbergsmælt hliðmælt nálgunarhljóð
- [ɭ] rismælt hliðmælt nálgunarhljóð
- [ʎ] framgómmælt hliðmælt nálgunarhljóð
- [ʟ] gómfyllumælt hliðmælt nálgunarhljóð
- [ɫ] eða [lˠ] gómfylluð hliðmælt nálgunarhljóð