Sláttarhljóð
Sláttarhljóð er samhljóð sem myndast með einum samdrætti vöðvanna þegar eitt talfæri skellir upp að öðru. Helsti munurinn á slattarhljóði og lokhljóði er sá að enginn loftþrýstingur er á bak við myndunarstaðinn og þannig er engin losun lofts. Annars er sláttarhljóð svipað stuttu lokhljóði. Sláttarhljóð má líka bera saman við sveifluhljóð, þar sem loftstraumurinn veldur því að talfærið titri.