Listi yfir bein í beinagrind mannsins
Listi yfir bein í beinagrind mannsins. Í beinagrind fullorðins manns eru 206 bein, en þau eru 270 við fæðingu. Með tíma bræða sum beinanna saman. Hér eru lítil bein eins og sesambein og hljóðbein (litlu beinin í eyranu) ekki talin með.
Oft er vísað í töluna 206 þegar talað er um fjölda beina í mannslíkamanum, en það er frekar sérkennilegt hvernig komst er að þessari tölu. Beinafjöldinn svarar til fullorðins einstaklings, en fjöldi beina í beinagrindinni er mismunandi eftir aldri. Nokkur bein sameinast, en venjulega lýkur þessum ferli á þriðja áratugi lífsins. Auk þess eru andlitsbein og höfuðkápubein talin sér, þó að þau séu eðlilega sameinuð. Nokkur sesambein, svo sem baunarbein, teljast með, en önnur ekki.
Í einstaklingum geta verið fleiri eða færri bein samkvæmt líffærafræðilegum breytileika. Meðal algengustu afbrigðanna eru auka rifbein og lendaliðir. Fjöldi sesambeina er líka mismunandi eftir einstaklingum.
Bein
breytaHeitin eru gefin fyrir á íslensku, en víðs vegar um heiminn eru latnesk fræðiheiti notuð.[1]
Hryggsúla
breyta- hryggjaliðir í hryggsúlu (26 bein)
- hálsliðir (7)
- brjóstliðir (12)
- lendaliðir (5)
- spjaldbein (5 við fæðingu, sameinast í eitt)
- rófubein (4 við fæðingu, sameinast í eitt)
Bringa
breyta- bringubein (1)
- rifbein (24, í 12 pörum), þar á meðal:
- 7 pör af heilrifum, sem eru tengd við bringubein (1. – 7. pörin)
- 3 pör af skammrifum, sem eru tengd hvert öðru og 7. parinu með brjóski
- 2 pör af lausarifum, sem eru ekki tengd neinum öðrum beinum
Höfuð
breyta- höfuðkúpa
- kúpubein (8)
- hnakkabein
- hvirfilbein (2)
- ennisbein
- gagnaugabein (2)
- fleygbein (telst stundum til andlitsupkúpu)
- sáldbein (telst stundum til andlitskúpu)
- andlitskúpa
- nefbein (2)
- kinnkjálki (2)
- tárabein (2)
- kinnbein (2)
- gómbein (2)
- neðri nefskel (2)
- plógur
- kjálki
- málbein
- í miðeyrum (3 × 2):
- kúpubein (8)
Handleggur
breyta- upphandleggur
- hönd (54 bein, 27 í hvorri hendi)
- úlnliður
- nökkvabein (2)
- mánabein (2)
- strýtubein (2)
- baunarbein (2)
- geirstúfsbein (2)
- geirstúflingsbein (2)
- kollbein (2)
- krókbein (2)
- miðhönd (5 × 2)
- fingurkjúkur
- nærkjúkur fingurs (5 × 2)
- miðkjúkur fingurs (5 × 2)
- fjarkjúkur fingurs (5 × 2)
- úlnliður
Leggur
breyta- hlaun, sem samanstendur af mjaðmarbeini, setbeini og klyftabeini (2)
- spjaldbein og rófubein tengja hlaunið saman til að mynda mjaðmagrind
- lærleggur
- hnéskel
- sköflungur
- dálkur
- fótur (52 bein, 26 í hvorjum fæti)
- hárist
- hælbein (2)
- vala (2)
- bátsbein (2)
- miðlægt kílbein (2)
- millikílbein (2)
- hliðlægt kílbein (2)
- teningsbein (2)
- framrist
- tákjúkur
- nærkjúkur táar (5 × 2)
- miðkjúkur táar (4 × 2)
- fjarkjúkur táar (5 × 2)
- hárist
Heimildir
breyta- ↑ „Orðasafn í líffærafræði“ (PDF). Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. 2013. Sótt 12. maí 2015.