Höfuðkúpa
Höfuðkúpan (hauskúpa eða haus(s)kella) (latína: cranium af gríska: orðinu κρανιον) er þyrping beina efst á hryggsúlunni, sem hefur að geyma heilann, augun og efsta hluta mænunnar. Hauskúpa manns er úr 22 beinum af ýmsum stærðum og gerðum, auk tungubeins, tanna og þriggja beina í miðeyra hvoru megin. Hlutar höfuðkúpurnar eru tengdir saman með (tenntum) beinsaumum.
Höfuðkúpunni er skipt í tvennt: kúpubein, sem umlykja heilann og andlitsbein.
Yfirlit yfir bein höfuðkúpunnar sem eru á myndunum til hliðar:
Latneskt heiti beins | Íslenskt heiti beins | Stutt lýsing | Hlutverk | Flokkur |
---|---|---|---|---|
Maxilla | Efri kjálki | A | ||
Mandibula | Neðri kjálki | A | ||
Os frontale | Ennisbein | Nokkuð stórt sveigt bein | K | |
Os sphenoidale | Fleygbein | Myndar hluta kúpubotns og augntófta | K | |
Os temporale | Gagnaugabein | Mynda botn og hliðarveggi höfuðkúpunnar | K | |
Os lacrimale | Tárabein | A | ||
Os nasalis inferior | Neðsta nefaða | A | ||
Os nasale | Nefbein | Þríhyrnd, lítil | A | |
Os occipitale | Hnakkabein | Myndar afturvegg og afturbotn höfuðkúpunnar, einnig myndar það lið með banakringlu og margir hálsvöðvar eiga festu á því | K | |
Os parietale | Hvirfilbein | Sveigð flöt bein, staðsett aftan við ennisbeinið og mætast í miðlínu | Myndar meginhluta þaks og veggja höfuðkúpunnar | K |
Os zygomaicum | Kinnbein | Bogin, óregluleg | Mynda veggi og botn augntófta | A |
Vomer | Plógbein | trapísulaga | Myndar neðri afturhluta nasaskilveggjar | A |
A merkir að bein flokkast sem andlitsbein, en K merkir að beinið flokkast sem kúpubein.
Yfirlit yfir sauma höfuðkúpunnar sem eru á myndunum til hliðar: |
Latneskt heiti saums | Íslenskt heiti saums | Stutt lýsing | Hlutverk |
---|---|---|---|
Sutura coronalis | Krónusaumur | tengir hvirfilbeinin | |
Sutura squamosa | Skeljarsaumur | Tengir hvirfilbein og gagnaugabein | |
Sutura lamboidae | Hnakkasaumur | liður á milli hvirfilbeina og hnakkabeins - Vantar á mynd |