Fótur
Fótur á íslensku er hvort tveggja ganglimur (fótleggurinn) og neðsti hluti hans og er hluti af líkama margra hryggdýra, m.a. mannsins. Fóturinn ber þyngd líkamans og er notaður til að ganga á (til hreyfingar).
Fóturinn (og hér er átt við neðsta hluta hans frá ökkla og niður úr) skiptist í:
- tær, smálimir fremst á fæti, oft liðaðir líkt og fingur.
- hæl, aftasti og neðsti hluti fótar.
- il, neðri hlið fótar.
- jarka, útjaðar mannsfótar.
- rist, efra borð mannsfótar (milli táa og ökkla).
- ökkla, svæðið kringum ökklaliðinn milli fótar og mjóaleggjar.
Hjá mönnum er fóturinn flókinn að byggingu. Hann inniheldur 26 bein, 33 liðamót og yfir eitt hundrað vöðva, sinar og liðbönd. Fóturinn skiptist í þrjá hluta:
- afturfótur — heilbein og vala
- miðfótur — bogar fótarins
- framfótur — kjúkur (sérstaklega tær)