Hofsjökull
64°49′28″N 18°49′23″V / 64.82444°N 18.82306°V
Hofsjökull er þíðjökull á miðhálendi Íslands sem liggur á milli Langjökuls til vesturs og Vatnajökuls til austurs, hann er 830 km² að flatarmáli og 1.765 m hár þar sem hann er hæstur. Hann er þriðji stærsti jökull landsins á eftir Langjökli og Vatnajökli. Hann var áður kenndur við Arnarfell hið mikla og hét þá Arnarfellsjökull en nafni hans var síðan breytt og er hann nú kenndur við Hof í Vesturdal í Skagafirði.
Skriðjöklar
breytaÞekktustu skriðjöklar Hofsjökuls eru (talið réttsælis frá Arnarfelli): Múlajökull til suðausturs, Blautukvíslarjökull til suðurs, Blöndujökull til vesturs, Kvíslajökull til vest-norð-vesturs og Þjórsárjökull til austurs.
Jökulár
breytaFrá Hofsjökli renna stórar jökulár; Blanda, Þjórsá, Jökulfall, Austari-Jökulsá og Vestari-Jökulsá.
Eldvirkni
breytaMikil megineldstöð og gosaskja (sigketill) leynist undir Hofsjökli. Askjan sést á gervitunglamyndum og kemur vel fram við dýptarmælingar á ísnum. Einnig er tölverð smáskjálftavirkni undir henni sem bendir til þess að þar sé virkt kvikuhólf. Ekki er vitað hvenær askjan varð til og ekki er heldur vitað hvenær síðast gaus innan hennar. Nokkur lítil hraungos hafa orðið í hlíðum Hofsjökuls á nútíma (þ.e. á síðustu 10.000 árum). Gígarnir eru nú huldir jökli en hrauntungur teygja sig út undan jökulröndinni og bera vitni um þessi gos.
Heimild
breyta- ^ „Landfræðilegar upplýsingar um Ísland“. Sótt 31. október 2005.
Tengill
breyta- Grein um Hofsjökul á Vísindavefnum
- Kort af svæðinu Geymt 11 mars 2007 í Wayback Machine