Hefei Xinqiao-alþjóðaflugvöllurinn
Alþjóðaflugvöllur Hefei Xinqiao (IATA: HFE, ICAO: ZSOF) (kínverska: 合肥新桥国际机场; rómönskun: Héféi Xīnqiáo Guójì Jīchǎng) er flughöfn Hefei höfuðborgar Anhui héraðs í Alþýðulýðveldinu Kína. Þessi nútímaflugvöllur er meginflughöfn héraðsins sem býður upp á ýmsar alþjóðlegar tengingar.
Flugvöllurinn er staðsettur um 32 kílómetra frá miðborg Hefei í bænum Gaoliu í Shushan-hverfi borgarinnar. Xīnqiáo þýðir á kínversku „Hin nýja brú“.
Hinn nýi flugvöllur hefur vaxið hratt. Árið 2018 afgreiddi flugvöllurinn um 11.1 milljónir farþega og um 70.000 tonn af farmi.
Saga
breytaFramkvæmdir hófust í árslok 2008 og var flugvöllurinn opnaður um mitt ár 2013. Hann leysti Luogang-flugvöllinn af hólmi sem aðalflugvöllur Hefei borgar.
Í fyrsta áfanga var byggð ein flugbrautar 3.400 metrar að lengd og 108.500 fermetra flugstöðvarbygging, sem á að hafa getu til að taka við 11 milljónir farþega á ári og 150.000 tonn af farmi á ári.
Í öðrum byggingaráfanga flugvallarins er miðaða við getu til að taka við 42 milljónir farþega á ári og 580.000 tonn farms. Á því að vera lokið árið 2040.
Samgöngur við flugvöllinn
breytaNýtt Snarlestarkerfi borgarinnar, strætisvagnar og gott vegakerfi tengja flughöfnina við miðborg Hefei og nærliggjandi svæði.
Flugfélög
breytaFlugvöllurinn er sérstakur áhersluflugvöllur fyrir flugfélögin China Eastern Airlines og Happy Airlines. Meðal annarra umsvifamikilla flugfélaga eru China International Airlines, West Air og Hainan Airlines. Alls starfa þar 39 farþegaflugfélög og 4 farmflugfélög.
Flugleiðir
breytaLangflestir áfangastaðir eru innan Kína, en einnig eru alþjóðaflug frá Bangkok, Kuala Lumpur, Singapúr, Seúl, Taípei, Osaka, Frankfurt am Main, Moskvu Balí, Hong Kong, Makaó, og fleiri staða.
Tenglar
breyta- Hefei borg
- Anhui hérað.
- Kínverskur (og enskur) vefur alþjóðaflugvallarins Hefei Xinqiao
- Vefsíða Travel China Guide Hefei Xinqiao flugvöllinn.[óvirkur tengill]. Almennar upplýsingar, kort af flugvellinum, samgöngur almenningsvagna á flugvöllinn o.fl.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Hefei Xinqiao International Airport“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 20. febrúar 2021.