Fjallatími
tímabelti í Norður-Ameríku
Fjallatími (Mountain Time Zone; skammstafað MT) er tímabelti sem nær yfir hluta af Kanada, Bandaríkjunum, og Mexíkó.
Staðir sem nota:
- Staðartíma (Mountain Standard Time; skammstafað MST) eru sjö tímum á eftir UTC, eða UTC−07:00 (haust/vetur).
- Sumartíma (Mountain Daylight Time; skammstafað MDT) eru sex tímum á eftir UTC, eða UTC−06:00 (vor/sumar).
Annan sunnudag í mars eru klukkurnar færðar áfram um einn klukkutíma, og fyrsta sunnudag í nóvember eru klukkurnar færðar aftur um klukkutíma.
Bandaríkin
breytaSex fylki eru staðsett að öllu leyti í Fjallatíma. Þau eru:
- Arizona (einungis Navahóaþjóðin notar sumartíma)
- Colorado
- Montana
- Nýja-Mexíkó
- Utah
- Wyoming
Þrjú fylki skiptast á milli Fjallatíma og Kyrrahafstíma. Þau eru:
Fimm fylki skiptast á milli Fjallatíma og Miðtíma. Þau eru: