Dow Jones-vísitalan
Dow Jones-vísitalan (enska Dow Jones Industrial Average) (DJIA) í Bandaríkjunum er ein elsta hlutabréfavísitala heims, en hún var fyrst gefin út þann 26. maí 1896. Í grunni vísitölunnar eru 30 mikils metin bandarísk fyrirtæki og er samanlagt markaðsvirði þeirra um fimmtungur af markaðsvirði allra félaga sem skráð eru í New York-kauphöllinni.
Þann 27. febrúar 2007 féll vísitalan um 416,02 stig eða 3,3%, Nasdaq-vísitalan og Standard & Poor’s-vísitalan féllu sömuleiðis, þetta er mesta hrap vísitölunnar síðan í september 2002 eða í rúm þrjú ár. Ástæðan var sú að virði kínverskra hlutabréfa féll um 9% eftir að hafa náð methæðum 26. febrúar. Þetta hefur haft neikvæð áhrif á markaði um allan heim.[1]
Sagan
breytaDow Jones hlutabréfavísitalan var fyrst gefin út 26. maí árið 1896 og voru þá tólf mikilsmetin bandarísk fyrirtæki í grunni hennar. Af þeim er einungis eitt sem er enn þá í vísitölunni, en það er General Electric. Fyrirtækið Dow Jones & Co. hefur reiknað og birt vísitöluna frá árinu 1896 en það gefur einnig út dagblaðið The Wall Street Journal þar sem talan er birt.
Þegar vísitalan var fyrst birt, stóð hún í 40,94 stigum. Hún var reiknuð sem meðaltal af verði hlutabréfa þeirra fyrirtækja sem voru í grunni vísitölunnar og þeirri tölu svo deilt með fjölda hlutabréfa. Fyrirtækin voru:
- American Cotton Oil
- American Sugar
- American Tobacco
- Chicago Gas
- Distilling and Cattle Feeding
- General Electric
- Laclede Gas
- National Lead
- North American
- Tennessee Coal & Iron
- U.S. Leather
- U.S. Rubber
Árið 1916 var fyrirtækjunum fjölgað í 20. Árið 1928 var fyrirtækjunum fjölgað í 30 og hefur sá fjöldi haldist síðan þó fyrirtækin séu ekki öll þau sömu. Á 9. og 10. áratug 20. aldar urðu miklar hækkanir á vísitölunni. Árið 1995 fór hún í fyrsta skipti yfir 5000 stig og árið 1999 fór hún í yfir 10.000 stig.
Vísitalan reiknuð
breytaÞrátt fyrir að vera ein af þekktustu vísitölum heims, endurspeglar hún ekki endilega bandarískan hlutabréfamarkað, þar sem í henni eru fyrst og fremst rótgróin framleiðslu- og iðnaðarfyrirtæki. Dow Jones-vísitalan er reiknuð sem einfalt meðaltal af verði hlutabréfa fyrirtækjanna sem í henni eru, en ekki verðmæti félaganna eins og algengast er í hlutabréfavísitölum. Vægi fyrirtækja í vísitölunni er því ekki í samræmi við verðmæti þeirra. Fyrir þetta hafa margir gagnrýnt vísitöluna.
Sveiflur vísitölunnar
breyta
Mestu stigahækkanir allra tíma
Mestu stigalækkanir allra tíma
|
Mestu prósentuhækkanir allra tíma
Mestu prósentulækkanir allra tíma
|
- Hæsta lokun vísitölunnar var 14. janúar 2000. Þá lokaði hún í 11.722,98 stigum. (skráð 31. desember 2005)
- Mesta prósentufall vísitölunnar á einum degi á síðustu 50 árum varð á hinum svokallaða "Svarta mánudegi" hinn 19. október 1987 þegar meðaltal hennar féll um 22,6%. Áður hafði hún fallið um 24,39% þann 12. desember 1914 sem er mesta prósentufall á einum degi frá upphafi vísitölunnar.
- Mesta stigafall vísitölunnar á einum degi var 17. september 2001, fyrsta viðskiptadag eftir árásirnar á World Trade Center og Pentagon sem gerðar voru 11. september 2001.
- 28. október 1929 féll vísitalan um 12,82% og daginn eftir, 29. október 1929 féll hún um 11,73%. Fara þessir tveir dagar í þriðja og fjórða sæti yfir þá daga sem vísitalan hefur fallið mest í prósentum.
- 14. nóvember 1972 fór vísitalan í fyrsta skipti yfir 1000 stig.
- 29. mars 1999 fór vísitalan í fyrsta skipti yfir 10.000 stig. Við lokun kauphallarinnar stóð vísitalan í 10.006,78 stigum.
- Við lok ársins 2005 stóð vísitalan í 10.717,5 stigum. (skráð 31. desember 2005)
Fyrirtækin
breytaEftirtalin 30 fyrirtæki eru aðilar að vísitölunni:
|
|
Tilvísanir
breyta- ↑ „Dow Average Falls 416 Points After China Sell-Off“. Sótt 28. febrúar 2007.
Heimildir
breyta- Vefur Dow Jones & Co.
- Orðasafn KB banka
- Fyrirmynd greinarinnar var „Dow Jones Industrial Average“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 29. desember 2005.
- Saga Dow Jones vísitölunnar