Viðvíkurhreppur var hreppur í Skagafjarðarsýslu, milli Héraðsvatna og Hjaltadalsár, kenndur við kirkjustaðinn Viðvík.

Viðvíkurhreppur

Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Viðvíkurhreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.

Hreppsnefnd

breyta

Síðasta hreppsnefnd Viðvíkurhrepps var kosin í hreppsnefndarkosningunum 28. maí 1994 og hana skipuðu Brynleifur Siglaugsson, Halldór Jónasson, Halldór Steingrímsson, Haraldur Þór Jóhannsson og Trausti Kristjánsson.

Oddvitar [1]

Heimildir

breyta
  1. Byggðasaga Skagafjarðar V. bindi Rípurhreppur - Viðvíkurhreppur, ritstjóri Hjalti Pálsson, bls 203
   Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.