The West Wing (6. þáttaröð)
Sjötta þáttaröðin af The West Wing var frumsýnd 24. október 2004 og sýndir voru 22 þættir.
Leikaraskipti
breytaLeikararnir Alan Alda og Jimmy Smits bættust við sem verðandi forsetaefni flokkanna og leikkonan Mary McCormack gerðist hluti af aðalleikurunum sem persónan Kate Harper.
Aðalleikarar
breyta- Alan Alda sem Arnold Vinick
- Stockard Channing sem Abigail Bartlet
- Dulé Hill sem Charlie Young
- Allison Janney sem C.J. Cregg
- Joshua Malina sem Will Bailey
- Mary McCormack sem Kate Harper
- Janel Moloney sem Donna Moss
- Richard Schiff sem Toby Ziegler
- Jimmy Smits sem Matt Santos
- John Spencer sem Leo McGarry
- Bradley Whitford sem Josh Lyman
- Martin Sheen sem Jed Bartlet
Aukaleikarar
breyta- Lily Tomlin sem Debbie Fiderer
- Nicole Robinson sem Margaret Hooper
- Melissa Fitzgerald sem Carol
- Kim Webster sem Ginger
- Renée Estevez sem Nancy
- Bill Duffy sem Larry
- Peter James Smith sem Ed
Gestaleikarar
breyta- Elisabeth Moss sem Zoey Patricia Bartlet
- Annabeth Gish sem Elizabeth Bartlet Westin
- Steven Eckholdt sem Doug Westin
- Allison Smith sem Mallory O'Brian
- Gary Cole sem Robert 'Bob' Russell
- Teri Polo sem Helen Santos
- Tim Matheson sem John Hoynes
- Michael O'Neill sem Ron Butterfield
- Anna Deavere Smith sem dr. Nancy McNally
- Kathleen York sem Andrea Wyatt
- Kristin Chenoweth sem Annabeth Schott
Þættir
breytaTitill | Höfundur | Leikstjóri | Sýnt í U.S.A. | Þáttur nr. |
---|---|---|---|---|
NSF Thurmont | John Wells | Alex Graves | 20.10.2004 | 1 - 111 |
Forsetinn reynir að koma á friðarviðræðum milli Ísraels og Palestínu eftir árásina á Gazasvæðinu. | ||||
The Birnam Wood | John Wells | Alex Graves | 27.10.2004 | 2 - 112 |
Forsetinn heldur friðarviðræður milli Ísraels og Palestínu í Camp David. Þátturinn endar á því að forsetinn rekur Leo, sem fær hjartaáfall í miðjum skóginum. | ||||
Third-Day Story | Eli Attie | Christopher Misiano | 03.11.2004 | 3 - 113 |
Starfsmennirnir rekast á við leiðtoga þingsins vegna friðarsamningana. Æðstu starfsmennirnir gera mistök í starfi þar sem enginn starfsmannastjóri er við lýði. Forsetinn ákveður að gera C.J. að starfsmannastjóra sínum. | ||||
Liftoff | Debora Cahn | Alex Graves | 10.11.2004 | 4 - 114 |
C.J. reynir að koma sér fyrir sem hinn nýi starfsmannastjóri Hvíta hússins á meðan Toby og Donna leita að nýjum fréttaritara. Josh kynnist þingmanninum Matthew Santos frá Texas. | ||||
The Hubbert Peak | Peter Noah | Julie Hébert | 17.11.2004 | 5 - 115 |
Josh prufukeyrir sportsjeppa sem endar á því að hann klessir honum á fjölknúinn bíl. Hefur þetta í för með sér að umhverfissinnar gagnrýna Hvíta húsið harðlega. Fréttaritarinn Annabeth Schott telur að hún geti þjálfað Toby í því að vera fréttaritari Hvíta Hússins. | ||||
The Dover Test | Carol Flint | Laura Innes | 24.11.2004 | 6 – 116 |
Ráðist er á bandarískt friðargæslulið á Gazasvæðinu. Þingmaðurinn Matt Santos aðstoðar repúblikana við Patients' Bill of Rights frumvarpið. | ||||
A Change Is Gonna Come | John Sacret Young og Josh Singer (sjónvarpshandrit) John Sacret Young (saga) |
Vincent Misiano | 01.12.2004 | 7 - 117 |
Undirbúningur forsetans fyrir heimsókn hans til Kína versnar eftir að hann þiggur fána Taívans. Hefur það í för með sér að Kína byrjar að hervæðast og Charlie þarf að endurheimta fánann til þess að skila honum. | ||||
In the Room | Lawrence O´Donnell, Jr. | Alex Graves | 08.12.2004 | 8 – 118 |
Afmælisveisla Zoey verður að umtalsefni fjölmiðla eftir að töframenn brenna bandaríska fánann. Forsetinn fær MS-kast um borð í forsetaflugvélinni á leiðinni til Kína. Josh er spurður af varaforsetanum hvort hann vilji vera kosningastjóri hans fyrir verðandi forsetakosningar. | ||||
Impact Winter | Debora Cahn | Lesli Linka Glatter | 15.12.2004 | 9 - 119 |
Forsetinn á erfitt með að sitja fundi með kínverskum ráðamönnum. Josh byrjar að velta fyrir sér hver ætti að verða næsti forsetinn og flýgur til Houston til að tala við þingmanninn Matt Santos. Donna segir upp starfi sínu eftir að hafa verið hunsuð af Josh. | ||||
Faith Based Initiative | Bradley Whitford | Christopher Misiano | 05.01.2005 | 10 - 120 |
Internetið er fullt af sögusögnum um kynhneigð C.J. sem neitar að gefa út yfirlýsingu. Donna byrjar að vinna hjá kosningaherferð varaforsetans. Santos ákveður að bjóða sig fram sem forseta með því skilyrði að Josh verði kosningastjóri hans. | ||||
Opposition Research | Eli Attie | Christopher Misiano | 12.01.2005 | 11 - 121 |
Santos byrjar kosningaherferð sína í New Hampshire en rekst á við Josh um hvað kosningabaráttan á að vera um. | ||||
365 Days | Mark Goffman | Andrew Bernstein | 19.01.2005 | 12 - 122 |
Daginn eftir seinustu stefnuræðu forsetans þá þarf starfsfólkið að sinna hættuástandi bæði í Norður-Kóreu og Bólivíu. Leo snýr aftur og byrjar að undirbúa seinustu 365 daga forsetans í starfi. | ||||
King Corn | John Wells | Alex Graves | 26.01.2005 | 13 - 123 |
Forsetaframbjóðendur flokkanna ferðast til Iowa til að tala við kornræktendur. Josh á erfitt með að finna út hvernig hann eigi að leiðbeina Santos í kosningabaráttunni. | ||||
The Wake Up Call | Josh Singer | Laura Innes | 09.02.2005 | 14 - 124 |
Bresk farþegaþota er skotin niður yfir Írak sem myndar alþjóðlegt hættuástand. C.J. og Abbey rökræða um hversu mikinn hvíldartíma forsetinn eigi að fá. Toby og lagaprófessorinn Lawrence Lessig vinna með erindsdrekum frá Hvíta-Rússalandi í þeim tilgangi að búa til nýja stjórnarskrá. | ||||
Freedonia | Eli Attie | Christopher Misiano | 16.02.2005 | 15 – 125 |
Fimm dagar eru í fyrstu forkosningar demókrata í New Hampshire og reynir Josh að koma frambjóðanda sínum inn í kappræðu dagblaðs sem aðeins Russell og Hoynes eru hluti að. Josh og Santos rekast á hvernig best er að reka kosningabaráttuna. | ||||
Drought Conditions | Debora Cahn | Alex Graves | 23.02.2005 | 16 - 126 |
C.J. reynir að finna staðgengil fyrir Josh, sem hún finnur í Clifford Calley. Josh og Toby rekast á og Toby segir C.J. frá því hvernig bróðir hans dó raunverulega. | ||||
A Good Day | Carol Flint | Richard Schiff | 02.03.2005 | 17 - 127 |
Santos reynir að koma í veg fyrir að frumvarp repúblikana um stofnfrumurannsóknir sé samþykkt. Toby fær heimsókn frá nemendum úr miðskóla sem vilja ræða kosningaaldurinn. Kate þarf að koma í veg fyrir innrás kanadamanna. | ||||
La Palabra | Eli Attie | Jason Ensler | 09.03.2005 | 18 - 128 |
Frambjóðendur demókrata berjast um Kaliforníu í forkosningunum og frumvarp um að banna innflytjendum um ökuskírteini hefur áhrif á kosningabaráttu þeirra. | ||||
Ninety Miles Away | John Sacret Young | Rol Holcomb | 16.03.2005 | 19 - 129 |
Forsetinn þarf að ákveða hvaða leið hann eigi að fara í samskiptum Bandaríkjanna við Kúbu. Á sama tíma komast Leo og Kate að því að þau eiga meira sameiginlegt en þau áttu von á. | ||||
In God We Trust | Lawrence O´Donnell, Jr. | Christopher Misiano | 23.03.2005 | 20 - 130 |
Öldungardeildarþingmaðurinn Arnold Vinick er kosinn forsetaefni repúblikana og fær ráðgjöf frá Bruno Gianelli um hvern hann eigi að velja sem varaforsetaefni sitt. Á meðan keppast Hoynes, Russell og Santos um hylli demókrata. | ||||
Things Fall Apart | Peter Noah | Nelson McCormick | 30.03.2005 | 21 - 131 |
Forsetinn biður Leo um að sjá um ráðstefnu demókrata. Á sama tíma uppgvötar Hvíta húsið leka eftir að viðkvæmar upplýsingar um hernaðargeimflaug rata í fjölmiðlana. | ||||
2162 Votes | John Wells | Alex Grave | 06.04.2005 | 22 - 132 |
Þrátt fyrir aðstoð frá Hvíta húsinu þá hefur ekki enn náðst að kjósa forsetaefni demókrata á ráðstefnunni. Josh reynir að leita uppi atkvæði fyrir Santos, þar á meðal frá Hoynes. Á sama tíma hitta Kate og Toby alríkisfulltrúanna sem eiga að finna þann sem lak upplýsingunum um hernaðargeimflaugina. Þátturinn endar á því að Matt Santos er valinn forsetaefni demókrata í verðandi forsetakosningum og velur Leo sem varaforsetaefni hans. | ||||
Tilvísanir
breytaHeimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „The West Wing (season 6)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 26. maí 2012.
- The West Wing á Internet Movie Database
- Sjötta þáttaröð The West Wing á The West Wing Episode Guide síðunni