Joshua Malina (fæddur Joshua Charles Malina 17. janúar 1966) er bandarískur leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í Sports Night, The West Wing og Scandal.

Joshua Malina
Upplýsingar
FæddurJoshua Charles Malina
17. janúar 1966 (1966-01-17) (58 ára)
Ár virkur1992 -
Helstu hlutverk
Jeremy Goodwin í Sports Night
Will Bailey í The West Wing
David Rosen í Scandal

Einkalíf

breyta

Malina fæddist í New York-borg en ólst upp í New Rochelle.[1][2] Stundaði nám í leiklist við Yale-háskóla.

Hefur verið giftur Melissa Merwin síðan 1996 og saman eiga þau tvö börn.

Ferill

breyta

Leikhús

breyta

Malina var varaleikari í leikritinu A Few Good Men frá 1989-1991 á Broadway.

Sjónvarp

breyta

Fyrsta sjónvarpshlutverk Malina var árið 1993 í Bob. Frá 1998-2000 lék hann Jeremy Goodwin í Sports Night og síðan árið 2002 var honum boðið hlutverk í dramaþættinum The West Wing. Lék hann Will Bailey til ársins 2006.

Hefur síðan 2012 leikið eitt af aðalhlutverkinu í Scandal þar sem hann leikur saksóknarann David Rosen.

Malina hefur komið fram sem gestaleikari í þáttum á borð við The Larry Sanders Show, Stargate SG-1, CSI: Crime Scene Investigation, Psych, CSI: Miami, American Horror Story, The Big Bang Theory og Leap Year.

Kvikmyndir

breyta

Fyrsta kvikmyndahlutverk Malina var árið 1992 í A Few Good Men. Hefur hann síðan þá komið fram í kvikmyndum á borð við The American President, Bulworth, Without Charlie, The First Time og View from the Top.

Kvikmyndir og sjónvarp

breyta
Kvikmyndir
Ár Kvikmynd Hlutverk Athugasemd
1992 A Few Good Men Tom sem Josh Malina
1993 In the Line of Fire Fulltrúinn Chavez
1993 Malice Íbúi
1995 Separate Lives Randall
1995 The American President David
1996 Infinity Reiknisvélakrakki nr. 3
1996 Just Friends Bob
1997 Clockwatchers Ritari Global Credit
1998 My Engagement Party Alex
1998 Bulworth Bill Feldman
1999 Kill the Man Bob Stein
2000 It´s a Shame About Ray Ms. Streisand
2001 Without Charlie Charlie
2001 It Is What It Is P.T. Hackey
2003 View from the Top Randy Jones sem Josh Malina
2004 Nobody´s Perfect ónefnt hlutverk
2012 The First Time Faðir Aubreys
2012 Walk & Talk: The West Wing Reunion Will Bailey
2012 Walk & Talk – The West Wing Reunion: Behind the Scenes Will Bailey
2012 Grindr for the GOP Convention ónefnt hlutverk
2012 Knights of Badassdom Travis Í eftirvinnslu
Sjónvarp
Ár Titill Hlutverk Athugasemd
1993 Bob Vince Þáttur: Da Game
1994 Menendez: A Killing in Beverly Hills Gerald Bronstein Sjónvarpsmynd
1996 Tracey Takes On.. Jordan 3 þættir
1996 Champs Leigubílstjóri Þáttur: Live and Let Breathe
1996 Sliders Egghead kynnir Þáttur: Rules of the Game
1998 From the Earth to the Moon Tim Messick Þáttur: We Have Cleared the Tower
1993-1998 The Larry Sanders Show Kenny Mitchell/Robert Brody 4 þættir
1998-2000 Sports Night Jeremy Goodwin 45 þættir
2000 How to Marry a Billionaire: A Christmas Tale Mark Sickler Sjónvarpsmynd
2002 Imagine That Kenny Fleck 6 þættir
2002 She Spies Jimmy Onassis Þáttur: First Episode
2003 See Jane Date Kevin Adams Sjónvarpsmynd
2003 All That ónefnt hlutverk Þáttur nr. 9.1.
2006 The PTA Stud Sjónvarpssería
2002-2006 The West Wing Will Bailey 80 þættir
2007 Stargate SG-1 Cicero Þáttur: Bad Guys
2006-2007 Numb3rs Howard Meeks 3 þættir
2006-2007 The Nine Tim Marley 2 þættir
2007-2008 Big Shots Karl Mixworthy 11 þættir
2008 Medium Tim Carmer Þáttur: Car Trouble
2008 CSI: Crime Scene Investigation Saksóknarinn Monroe Þáttur: Woulda, Coulda, Shoulda
2008 Grey's Anatomy Seth Hammer Þáttur: In the Midnight Hour
2009 Terminator: The Sarah Connor Chronicles Fulltrúinn Auldridge Þáttur: Born to Run
2009 iCarly Goldstein Þáttur: iTake on Dingo
2009 Valentine Duncan Þáttur: Hound Dog
2009 Psych Stewart Gimbley Þáttur: Let´s Get Hairy
2009 House Tucker Þáttur: Wilson
2010 Legally Mad Aaron Sjónvarpsmynd
2010 Bones Dr. Adam Copeland Þáttur: The Devil in the Details
2010 The Sarah Silverman Program Yfirmaðurinn Bill Wilson Þáttur: Nightmayor
2010 The Good Guys Aðstoðarlögreglustjórinn James Guthrie 2 þættir
2010 CSI: Miami Neal Marshall Þáttur: G.O.
2010 Private Practice Faðir Marissu Þáttur: ..To Change the Things I Can
2009-2011 In Plain Sight Peter Alpert 17 þættir
2011 American Horror Story Dr. Curran Þáttur: Spooky Little Girl
2010-2011 Backwash Val 13 þættir
2011-2012 The Big Bang Theory Rektorinn Siebert 3 þættir
2012 Chasing the Hill Öldungardeildarþingmaðurinn Troy Spencer Þáttur: Awesomeness Is a Warm Gun
2012 Christine Matthew Þáttur: Matthew
2012 Leap Year Sam Berry 4 þættir
2012 Scandal David Rosen 13 þættir

Verðlaun og tilnefningar

breyta

Screen Actors Guild-verðlaunin

  • 2006: Tilnefndur sem besti leikhópur í dramaseríu fyrir The West Wing.
  • 2005: Tilnefndur sem besti leikhópur í dramaseríu fyrir The West Wing.
  • 2004: Tilnefndur sem besti leikhópur í dramaseríu fyrir The West Wing.
  • 2003: Tilnefndur sem besti leikhópur í dramaseríu fyrir The West Wing.
  • 2000: Tilnefndur sem besti leikhópur í gamanseríu fyrir Sports Night.

Tilvísanir

breyta
  1. Connections Help Bring Actor to West Wing
  2. „JewishJournal.com“. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. mars 2012. Sótt 15. nóvember 2012.

Heimildir

breyta

Tenglar

breyta