Gotareynir
Gotareynir er reynitegund.
Gotareynir | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Sorbus teodorii Liljefors |
Lýsing
breytaGotareynir verður að 2 m. hár. Blöðin eru fjöðruð, og endasmáblaðið er stærra en hin, og þrískift. Blómin eru gulhvít í hálfsveip. Berin eru rauð. Hann er einn af mörgum apomitic (með geldæxlun) smátegundum á Norðurlöndunum og mjög líkur norsku tegundinni Strandreyni (Sorbus meinichii).[1]
Útbreiðsla
breytaGotareynir er útbreiddur í Svíþjóð (Gotlandi, Suðurmannalandi og Upplönd), Finnlandi (Åland) og Lettlandi (Staldzene í Ventspils héraði)[2]. Margir grasafræðingar vilja ekki telja gotareyni sem sjálfstæða tegund, heldur til strandreynis (S. meinichii). Aðrir, svo sem Salvesen (2011)[3], telja að báðir skiftist niður í fleiri örtegundir sem hafi komið fram óháð hver annarri.
Orðsifjar
breytaTegundarnafnið teodorii er til heiðurs Uppsalaprófessornum Teodor Hedlund (1861-1953).[1]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 http://linnaeus.nrm.se/flora/di/rosa/sorbu/sorbteo.html | titill=Avarönn | sótt=2015-08-05 | útgefandi=Den virtuella floran
- ↑ A. Mitchell; Þýtt af I. Gjærevoll (1977). Trær i skog og hage. Tiden. bls. 278. ISBN 82-10-01282-7.
- ↑ P.H. Salvesen. „Rogn og asal (slekten Sorbus) i Arboretet på Milde: – Del 2. Norske spesialiteter“. Årringen. () (2011): 15da bindi, síða 94–96.