Samgöngusamningur
Samgöngusamningar eru samningar sem vinnustaðir gera við starfsmenn sína, og snúast ofast um að hvetja til notkunar á samgöngumátum sem ekki krefjast bílastæðis í nálægð við vinnustaðnum. Starfsmenn sem skrifa undir samgöngusamning fá gjarnan fjárstyrk sem samsvarar til dæmis kostnaði við afsláttarkorti í Strætó bs. Útfærslur á Íslandi virðast oftast fela í sér að fólk skuldbindur sig til að mæta mun sjaldnar á bíl og nota sjaldan bílastæði við vinnustaðinn. Í staðinn er gengið til vinnu, farið á strætó, reiðhjóli, skokkað eða notast við aðra virka ferðamáta. Samningar geta til dæmis miðað við að starfsmaður mæti á bíl í vinnuna að hámarki 1 eða 2 daga vikunnar. Meðal þeirra á Íslandi sem hafa hvatt til þess að samgöngusamningar verða teknar upp víðar eru Samtök um bíllausan lífsstíl, Landssamtök hjólreiðamanna, Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og Strætó bs
Rök
breytaNokkur mismunandi rök eru nefnd fyrir því að taka upp samgöngusamninga.
- Skortur er á bílastæðum í námunda við vinnustaðinn
- Það mundi kosta mikið að bæta við bílastæðum eða leiga frá öðrum
- Með samgöngusamningum er verið að hvetja til hreyfingar, sem eflir lýðheilsu og dregur úr kostnaði vegna veikinda
- Minni bílaumferð er jákvæð fyrir umhverfið og fyrir ímynd vinnustaðar
- Með því að borga þeim sem nota ekki (gjaldfrjáls) bílastæði er stuðlað að jafnræði samgöngumáta
Tegundir á Íslandi
breytaÞað mætti segja að til séu þrenns konar samgöngusamninga, í röð frá mesti til minnsti umbunarmöguleika :
- Föst upphæð er greidd til starfsmanns án þess að beintengja við útlagðan kostnað. Starfsmaðurinn skrifar undir samning um hámarksnotkun á bilastæðum, til dæmis einu sinni eða tvísvar á viku að jafnaði. Í þessari útfærslu er stumdum tekið mið af ójafnræði tengd bílastæðahlunninda, og þeim að nokkru leiðrétt. Samt mun vinnustaðurinn gjarnan spara í rekstri, því með lækkandi eftirspurn eftir bílastæðum dregur úr kostnaði, svo sem viðhald, leiga eða framkvæmdir tengd bílastæðum. Fasta upphæðin getur gróft séð samsvarað verðið fyrir mánaðarkorti í strætó á gjaldsvæði 1 (Dæmi : Ráðgjafa- og Verkfræðistofan Mannvit )
- Útlagðan kostnað við hjólreiðar, göngu, strætó endurgreiddur samkvæmt kvittun, gjarnan eitthvað lægri hámarksupphæð en í tegund 1. ( Dæmi Ríkisstofnunin Vegagerðin )
- Fyrirtækið semur við Strætó um lækkað verð fyrir sína starfsmenn. Stundum niðurgreiðir fyrirtækið aukalega. ( Sjá listi hjá Strætó. Dæmi Sóltún - hjúkrunarheimili )
Skattareglur á Íslandi
breyta- Samgöngugreiðslur tengd ferðum með almenningssamgöngum eða virkum ("óvélknúnum") ferðamátum, upp að kr. 8500 á mánuði eru skattfrjálsar samkvæmt skattmati fyrir 2021 (var 7000 fyrir árinu 2013), eftir lagabreytingu 2012. Það er skilyrði að starfsmaður undirriti samning við vinnuveitenda um að nota græna samgöngumátana (aðra en bíl) til vinnu að lágmarki 80% daganna. Skattmatið lækkar skattfrjáls upphæð í 4000 ef lágmarkshlutfall græna samgönumáta yfir samningstímabílinu í samningnum er 40%. [1]
Útbreiðsla á Íslandi
breytaFyrstu vinnustaðir sem tóku upp samgöngusamninga voru
breyta( Gilda um hjólreiðar, göngu, aðrir virkir, grænir og heilbrigðir samgöngumátar. Gilda einnig um almenningssamgöngur. Reynt er að hafa listann í tímaröð )
- Mannvit hf. Verkfræði- og ráðgjafastofa [2]
- Fjölbrautaskólinn við Ármúla.
- Samgönguráðuneytið. Ráðuneytið sameinaðist öðrum, heitir núna Innanríkisráðuneytið og samgöngusamningar hafa verið í frosti síðan.
- Umhverfisráðuneytið.
- Matís ohf. Opinbert hlutafélag / stofnun um matvæli [3]
- Iceland Express. Flugfélag
- Umhverfisstofnun. [4]
- Landsbankinn[5]
Aðrir
breytaHér er listi í lauslegri tímaröð, háð vitneskju.
- Vegagerðin.
- Alta ehf, ráðgjafafyrirtæki [6]
- Advania ( áður Skýrr ). Tölvuþjónusta og vörur
- Hugsmiðjan hugbúnaðarfyrirtæki, [5]
- Nýherji Tölvuvörur og -þjónusta [7]
- Talenta. Sérhæft tölvuþjónustufyrirtæki [8]
- Reiknistofa bankanna, [9]
- Vínbúðin [10]
- Síminn Síma- og netveita [11]
- Landspítalinn Háskólasjúkrahus og þjóðarsjúkrahus. [12] [13]
- Skipti Þekktast sem móðurfyritæki Símans [14]
- Seðlabanki Íslands [15]
- Fjármálaeftirlitið[16]
- Valitor, greiðslumiðlun [17]
- Seltjarnarnesbær [18]
- Flensborgarskóli, framhaldsskóli [19]
- Míla, net-samskiptainnvíðir [20]
- Skjárinn, Sjónvarpsstöð o.fl [21]
- Sensa, sérhæft tölvu- og netþjónustufyrirtæki [22]
- Staki, sérhæft tölvuþjónustufyrirtæki [23]
- Radíómiðun, Upplýsingatækni fyrir skip [24]
- On-Waves, Net-tengingar fyrir skip [25]
- CCP, tölvuleikjaframleiðandi [26]
- Reykjavíkurborg Sveitarfélagið er meðal stærstu vinnuveitenda landsins. [27][28]
- Norðurorka, orkufyrirtæki á Norðurlandi [29][30]
- Sildarvinnslan, fiskvinnslufyrirtæki (Neskaupstað,Seyðisfjörður,Helguvík), [31]
Samgöngusamningar án fulls stuðnings við hjólreiðar, göngu og almenningssamgöngur til vinnu
breytaBorgað fyrir ferðir á hjóli og strætó í þágu vinnuveitenda
- Reykjavíkurborg - Borgaði áður einungis fyrir ferðir í þágu vinnuveitenda. Í strætó, á reiðhjóli og gangandi.
Hafa gert samning við Strætó um samgöngukort og eru mögulega einnig að styrkja aðra samgöngumáta [32]
- Bílastæðasjóður
- Hugsmiðjan
- Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
- Ríkiskaup
- Strætó bs.
- Hjúkrúnarheimilið Sóltún [33]
Tenglar
breyta- Þriðjungur starfsmanna ráðuneytis hefur skrifað undir samgöngusamning Sótt 2013-11-07.
- Rökfærsla fyrir samgöngusamninga og dæmi um útfærðan samningstexta af vef Landssamtak hjólreiðamanna Sótt 2013-11-07.
- Styrkja starfsfólk til að skilja bilinn eftir heima Sótt 2013-11-07.
- Samgöngusamningar vinsælir -rætt við Ásmund K. Ólafsson, Strætó og Steinar B. Aðalbjörnsson, Matís Geymt 24 mars 2012 í Wayback Machine Sótt 2013-11-07.
- Skattmat, nýjasti útgáfa Sótt 2013-11-15.
Tilvisanir
breyta- ↑ Skattmat Tekjuárið 2021 (Sótt 2021-06-16)
- ↑ Samgöngustefa Mannvits Geymt 17 október 2012 í Wayback Machine, Sótt 2012-03-21
- ↑ „Matís tekur stórt skref í átt til vistvænna og heilsusamlegra samgöngumáta“. 2011. Sótt 16. janúar 2015.
- ↑ Kostnaður fyrirtækja við gerð og viðhald á bílastæðum er mikill. Nú bjóða ýmis fyrirtæki starfsfólki sínu upp á samgöngusamning en þá skuldbindur starfsmaðurinn sig til þess að fara ekki á einkabíl til og frá vinnu og fær í staðinn ákveðna greiðslu. Slíkt býðst t.d. starfsfólki Umhverfisstofnunar. Geymt 14 janúar 2019 í Wayback Machine , sótt 2013-03-26
- ↑ 5,0 5,1 „Landsbankinn og Hugsmiðjan heiðruð fyrir vistvænan samgöngumáta“. 2013. Sótt 16. janúar 2015.
- ↑ dagsetning=2015
- ↑ Starfsmenn Nýherja ferðast um á hjólum Geymt 19 júní 2014 í Wayback Machine, sótt 2014-06-20
- ↑ Samgöngustefna Talenta, sótt 2013-03-26
- ↑ „Bjóða starfsfólki vistvænan samgöngustyrk“. 2013. Sótt 14.október 2014.
- ↑ „Ársskýrsla 2012“ (PDF). 2013. Sótt 16. janúar 2015.
- ↑ Tilkynning á innra neti, 2013-11-25
- ↑ Samgöngustyrkir LSH - Það er eitthvað að ganga, sótt 2014-05-23
- ↑ Um 28% starfsmanna hafa gert samgöngusamning. Samgöngusamningur hefur fengið mjög góðar viðtökur meðal starfsmanna á Landspítala. Nú hafa um 1.300 gert slíkan samning eða um 28% starfsmanna., sótt 2014-05-23
- ↑ Tilkynning á innra neti, 2013-11-25
- ↑ „Seðlabankafólk hjólar í vinnuna“. 2013. Sótt 15. janúar 2015.
- ↑ „Þriðjungur með samgöngusamning“. 2014. Sótt 16.janúar 2015.
- ↑ „Fyrsti græni leigusamningurinn hérlendis“. 2013. Sótt 16.janúar 2015.
- ↑ „Kjarabót fyrir starfsmenn Seltjarnarnesbæjar“. 2014. Sótt 16. janúar 2015.
- ↑ „Flensborgardagurinn – margt að gerast“. 2014. Sótt 16. janúar 2015.
- ↑ Tilkynning á innra neti, 2015-01-05
- ↑ Tilkynning á innra neti, 2015-01-05
- ↑ Tilkynning á innra neti, 2015-01-05
- ↑ Tilkynning á innra neti, 2015-01-05
- ↑ Tilkynning á innra neti Skipta, 2015-01-05
- ↑ Tilkynning á innra neti Skipta, 2015-01-05
- ↑ „CCP greiðir fyrir gönguferðir“. 2015. Sótt 16. janúar 2015.
- ↑ „Borgarráð: samgöngusamningar verði teknir í notkun hjá Reykjavíkurborg frá og með 1. september nk“. 2017. Sótt 3. apríl 2017.
- ↑ „Samgöngusamningar við starfsmenn Reykjavíkurborgar“. 2017. Sótt 3. apríl 2017.
- ↑ Upplýst á samfélagsmiðli að Norðurorka hefur boðið Samgöngugreiðslur í þrjú ár, 2019-04-29
- ↑ „Rafhjól er ódýrt umhverfisvænt samgöngutæki“. Norðurorka. Sótt 9. maí 2019.
- ↑ „Síldarvinnslan gerir samgöngusamning við starfsfólk“. 2019. Sótt 2019.
- ↑ Listi Strætó yfir fyritæki með samgöngukort Geymt 22 febrúar 2013 í Wayback Machine, sótt 2013-02-20
- ↑ Sóltun semur um samgöngukort við Strætó Geymt 16 september 2014 í Wayback Machine Sótt 2013-03-26