Landspítali
Landspítali er stærsta sjúkrahús á Íslandi og háskólasjúkrahús. Það varð til árið 2000 við samruna Landspítalans (Ríkisspítala), sem tók til starfa 20. desember 1930, og Sjúkrahúss Reykjavíkur (Borgarspítalans). Reglugerð um samrunann var gefin út 3. mars 2000. Stofnfundur spítalans var í Borgarleikhúsinu 16. maí 2000. Hinn nýi spítali nefndist Landspítali - háskólasjúkrahús (skammstafað LSH) til 1. september 2007, þegar nafninu var breytt í Landspítali, en skammstöfunin hélt sér.[1]
Svið
breytaSkipuriti Landspítala var breytt frá 1. október 2019. Á Landspítala eru nú þrjú svið; meðferðarsvið, aðgerðasvið og þjónustusvið. Einnig skrifstofa Landspítala en undir henni eru skrifstofa forstjóra, skrifstofa framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga, skrifstofa fjármála og skrifstofa mannauðsmála.
Stjórn
breytaFramkvæmdastjórn stjórnar daglegum rekstri Landspítala. Hana skipa forstjóri og 8 framkvæmdastjórar.
Framkvæmdastjórn LSH
breyta- Runólfur Pálsson forstjóri
- Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra
- Gunnar Ágúst Beinteinsson, framkvæmdastjóri mannauðsmála
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs
- Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs
- Jón Hilmar Friðriksson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs
- Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga
- Ólafur Darri Andrason, framkvæmdastjóri fjármála
- Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
Sjá einnig
breytaTenglar
breyta- Upplýsingavefur Landspítala (www.landspitali.is)