Gilbert Ryle
Gilbert Ryle (19. ágúst 1900 – 6. október 1976) var breskur heimspekingur og einn af fulltrúum þeirrar kynslóðar breskra heimspekinga sem kenndir voru við hversdagsmál og voru undir áhrifum frá Ludwig Wittgenstein. Ryle er einkum þekktur fyrir gagnrýni sína á cartesíska tvíhyggju. Hann bjó til hugtakið „draugurinn í vélinni“. Hann kenndi sumar hugmyndir sínar við atferlishyggju (sem ætti ekki að rugla saman við atferlishyggju í sálfræði).
Gilbert Ryle | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 19. ágúst 1900 (í Brighton á Englandi) |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 20. aldar |
Skóli/hefð | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk | The Concept of Mind; Dilemmas (Ógöngur) |
Helstu kenningar | The Concept of Mind; Dilemmas (Ógöngur) |
Helstu viðfangsefni | málspeki, hugspeki |
Hann var fæddur í Brighton á Englandi árið 1900 og var menntaður í Brighton College, líkt og bræður hans John og George. Hann vann fyrir leyniþjónustu hersins í síðari heimsstyrjöldinni en varð Wayneflete-prófessor í frumspekilegri heimspeki við Oxford háskóla að stríðinu loknu. Meginrit hans var The Concept of Mind sem kom út árið 1949.