Loðvík Filippus
Loðvík Filippus (6. október 1773 – 26. ágúst 1850) var síðasti konungur Frakklands frá 1830 til 1848 í því sem var kallað júlíríkið. Hann var annar og síðasti konungurinn sem ríkti yfir Frakklandi með titlinum „konungur Frakka“ (roi des Français) fremur en „konungur Frakklands“. Loðvík Filippus var ekki eins íhaldssamur og forverar hans og í honum birtist mjög nýstárleg túlkun á einvaldshlutverki Frakklands.
| ||||
Loðvík Filippus
| ||||
Ríkisár | 9. ágúst 1830 – 24. febrúar 1848 | |||
Skírnarnafn | Louis Philippe d'Orléans | |||
Fæddur | 6. október 1773 | |||
Palais-Royal, París, Frakklandi | ||||
Dáinn | 26. ágúst 1850 (76 ára) | |||
Claremont, Surrey, Englandi, Bretlandi | ||||
Gröf | Chapelle royale de Dreux | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Loðvík Filippus 2. hertogi af Orléans | |||
Móðir | Louise Marie Adélaïde de Bourbon, hertogaynja af Orléans | |||
Drottning | Maria Amalia af Napólí og Sikiley | |||
Börn | Ferdinand Philippe, Louise, Marie, Louis, Clémentine, François, Charles, Henri, Antoine |
Loðvík Filippus hafði á ævi sinni borið ýmsa titla: Hann var hertogi af Valois (1773-1785), hertogi af Chartres (1785-1793) og loks hertogi af Orléans (1793-1830) áður en hann varð konungur árið 1830 þegar frænda hans, Karli 10., var steypt af stóli í júlíbyltingunni.
Á átján ára valdatíð Loðvíks Filippusar áttu sér stað miklar samfélags-, efnahags- og stjórnmálaumbreytingar í Frakklandi. Loðvík Filippus reyndi að friðþægja sundurleita þjóð sína með ýmsum ráðum: Á valdatíð hans var komið á þingræði og miðstéttinni var hleypt inn í framleiðslu- og fjárfestingaiðnaðinn, sem jók hagvöxt í Frakklandi og ýtti undir iðnbyltinguna þar í landi. Hann hvatti auk þess til vinsamlegra sambands við Breta og til útþenslu nýlenduveldis Frakka, þ. á m. til Alsír. Þó entist júlíríkið ekki lengur en fram til ársins 1848, en þar er m.a. um að kenna versnandi hag verkamannastéttarinnar og skilningsleysi valdastéttanna gagnvart óskum fransks almennings. Loðvík Filippus hafði reynst mun íhaldssamari en byltingarmennirnir sem komu honum til valda vonuðust eftir, sérstaklega á valdatíma ráðherrans François Guizot frá 1840–48. Loðvík Filippus neyddist til að segja af sér árið 1848 í kjölfar nýrrar byltingar og flutti í útlegð til Bretlands, þar sem hann dó tveimur árum síðar.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Louis-Philippe Ier“ á frönsku útgáfu Wikipedia. Sótt 17. ágúst 2018.
Fyrirrennari: Karl 10. |
|
Eftirmaður: Enginn; konungsríkið leyst upp |