Lúxemborg (hérað)
Lúxemborg (franska: Province de Luxembourg) er suðaustasta hérað Belgíu og frönskumælandi. Það var áður fyrr hluti af furstadæminu Lúxemborg en klofnaði frá því í belgísku uppreisninni 1839. Höfuðborg héraðsins er Arlon.
Fáni | Skjaldarmerki |
---|---|
Upplýsingar | |
Höfuðborg: | Arlon |
Flatarmál: | 4.443 km² |
Mannfjöldi: | 264.084 (1. janúar 2008) |
Þéttleiki byggðar: | 59/km² |
Vefsíða: | [1][óvirkur tengill] |
Lega | |
Lega og lýsing
breytaHéraðið Lúxemborg er 4.443 km2 að stærð og er því stærsta hérað Belgíu. Það er hins vegar fámennast með rúmlega 260 þúsund íbúa. Lúxemborg er suðaustast í landinu og á landamæri að Frakklandi í suðri og furstadæminu Lúxemborg í austri. Auk þess eru belgísku héruðin Namur fyrir vestan og Liège fyrir norðan. Ardennafjöll teygja sig yfir nær allt héraðið, sem er mjög hæðótt og skógi vaxið. Hæsta fjallið nær þó ekki nema 650 m hæð.
Fáni og skjaldarmerki
breytaHéraðsfáni Lúxemborgar er eins og lúxemborgski fáninn, nema hvað héraðsskjaldarmerkið er fyrir miðju. Þegar héraðinu var skipt út úr furstadæminu Lúxemborg þótti óþarft að búa til öðruvísi fána. Skjaldarmerki héraðsins er einnig nánast eins og skjaldarmerki furstadæmisins. Rauða ljónið hefur verið notað í aldaraðir. Kórónan er tákn konungsríkisins Belgíu.
Söguágrip
breytaÍ gegnum aldirnar var héraðið hluti af stórhertogadæminu Lúxemborg. Þegar Niðurlönd urðu að konungsríki 1830, var hertogadæmið hluti af því, en konungurinn í Hollandi var jafnframt hertogi Lúxemborgar. Árið 1839 hófst belgíska uppreisnin, sem endaði með því að Belgía sleit sig frá Hollandi og lýsti yfir sjálfstæði. Lúxemborg klofnaði þá í tvennt. Vesturhlutinn, frönskumælandi íbúar, tók þátt í uppreisninni og varð að héraði í Belgíu. Austurhlutinn, sem var þýskumælandi, varð að sjálfstæðu ríki. Höfuðborg héraðsins varð Arlon, þrátt fyrir að hún væri að mestu þýskumælandi. Ástæðan fyrir því var sú að í belgíska hluta Lúxemborgar var engin stærri borg sem gæti tekið höfuðborgarhlutverkið að sér. Því er í héraðinu lítill minnihluti sem enn í dag talar lúxemburgísku.
Borgir
breytaÍ Lúxemborg eru 44 sveitarfélög, en engar eiginlegar borgir. Stærstu bæir héraðsins:
Röð | Bær | Íbúar | Ath. |
---|---|---|---|
1 | Arlon | 28 þúsund | Höfuðborg héraðsins |
2 | Marche-en-Famenne | 17 þúsund | |
3 | Aubange | 15 þúsund | |
4 | Bastogne | 14 þúsund |
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Luxemburg (Provinz)“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. október 2012.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Luxembourg (Belgium)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. október 2012.