Kristján L. Möller
Kristján Lúðvík Möller (f. 26. júní 1953 á Siglufirði) er fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Hann var alþingismaður Samfylkingarinnar frá 1999-2016. Fyrsta kjörtímabilið sat hann á þingi fyrir Norðurland vestra en frá 2003-2016 fyrir Norðausturkjördæmi. Foreldrar hans eru Helena Sigtryggsdóttir og Jóhann Georg Möller. Kristján er með iðnskólapróf 1971 og íþróttakennarapróf frá 1976. Hann hefur stundað kennslu og starfað að félags- og íþróttamálum.
Kristján L. Möller (KLM) | |
| |
Fæðingardagur: | 26. júní 1953 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Siglufjörður |
3. þingmaður Norðausturkjördæmis | |
Flokkur: | Samfylkingin |
Þingsetutímabil | |
1999-2003 | í Norðurl. v. fyrir Samf. |
2003-2007 | í Norðaust. fyrir Samf. |
2007-2016 | í Norðaust. fyrir Samf. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2007-2010 | Samgönguráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Kristján var samgönguráðherra 2007-2010.
Kristján ákvað að gefa ekki kost á sér í Alþingiskosningunum 2016.[1]
Fyrirrennari: Sturla Böðvarsson |
|
Eftirmaður: Ögmundur Jónasson |
Tenglar
breyta- Heimasíða Kristjáns Geymt 27 febrúar 2009 í Wayback Machine
- Alþingi - Æviágrip: Kristján L. Möller
- ↑ 13 þingmenn hætta - 6 fyrrverandi ráðherrar Rúv, skoðað 14. september, 2016.