Kim Dae-jung
Kim Dae-jung (6. janúar 1924 – 18. ágúst 2009) var forseti Suður-Kóreu frá 1998 til 2003. Hann vann friðarverðlaun Nóbels árið 2000 fyrir hina svokölluðu „Sólskinsstefnu“ sína í utanríkismálum gagnvart Norður-Kóreu sem vann að því að koma á sáttum milli ríkjanna tveggja. Sólskinsstefnan byggðist að nokkru leyti á „austurstefnu“ Willy Brandt, kanslara Vestur-Þýskalands, í samskiptum við Austur-Þýskaland. Kim er eini Kóreumaðurinn sem hefur unnið til Nóbelsverðlauna.
Kim Dae-jung | |
---|---|
김대중 | |
Forseti Suður-Kóreu | |
Í embætti 25. febrúar 1998 – 25. febrúar 2003 | |
Forsætisráðherra | Kim Jong-pil Park Tae-joon Lee Han-dong Chang Sang Chang Dae-whan Kim Suk-soo |
Forveri | Kim Young-sam |
Eftirmaður | Roh Moo-hyun |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 6. janúar 1924 Hauido, japönsku Kóreu (nú Suður-Kóreu) |
Látinn | 18. ágúst 2009 (85 ára) Seúl, Suður-Kóreu |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkur Kóreu |
Maki | Cha Yong-ae (g. 1945; d. 1959); Lee Hui-ho (g. 1962) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Börn | Kim So-hee, Kim Hong-il, Kim Hong-up, Kim Hong-gul |
Starf | Stjórnmálamaður |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels |
Undirskrift |
Kim hafði lengi verið forystumaður stjórnarandstöðunnar og talsmaður fyrir lýðræðisumbótum í Suður-Kóreu. Hann byrjaði stjórnmálaferil sinn á sjötta áratugnum og var kjörinn á þing árið 1961. Hann komst þó ekki á þing fyrr en tveimur árum síðar því að þremur dögum eftir kosningarnar rændi Park Chung-hee völdum í Suður-Kóreu og tók sér einræðisvald. Kim vakti fyrst verulega athygli tíu árum síðar þegar hann sigraði Park nærri því í forsetakosningum þrátt fyrir að einræðisstjórnin beitti stórtæku kosningasvindli.[1]
Eftir að Park kom á herlögum flúði Kim til útlegðar í Japan. Árið 1973 slapp Kim naumlega með líf sitt þegar leyniþjónusta Parks reyndi að koma honum fyrir kattarnef. Kim sneri aftur til Suður-Kóreu eftir dauða Parks en var handtekinn og yfirgaf Suður-Kóreu á ný eftir að hafa afplánað tveggja og hálfs árs fangavist. Hann sneri endanlega heim árið 1985 og var kjörinn forseti árið 1997.
Kim hefur verið kallaður „Nelson Mandela Suður-Kóreu“.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Veitt fyrir sáttastarf á Kóreuskaga“. mbl.is. 14. október 2001. Sótt 5. janúar 2017.
- ↑ „Kim Dae-jung: Dedicated to reconciliation“ (enska). CNN. 14. júní 2001. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. september 2006. Sótt 5. janúar 2017.
Fyrirrennari: Kim Young-sam |
|
Eftirmaður: Roh Moo-hyun |