Jiangsu
Jiangsu (eða Kiangsu) (kínverska: 江苏; rómönskun: Jiāngsū ) er strandhérað við Gulahaf í austurhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Það er eitt af leiðandi héruðum landsins í fjármálum, menntun, tækni og ferðaþjónustu. Jiangsu er ekki stórt að flatarmáli (102.600 ferkílómetrar) en afar þéttbýlt. Íbúar eru um 84.7 milljónir, langflestir Han-Kínverjar. Höfuðborg héraðsins er Nanjing. Héraðið er almennt álitið eitt þróaðasta hérað Kína.
Landfræðileg afmörkun
breytaJiangsu héraðið er á austurströnd Kína. Það afmarkast af Gula hafi í austri, borghéraðinu Shanghai í suðaustri, og af héruðunum Zhejiang í suðri, Anhui í vestri og Shandong í norðri. Héraðið er með yfir 1.000 km strandlengju meðfram Gulahafi og hið mikla Jangtse-fljót (eða Bláá) fer um suðurhluta þess.
Borgir
breytaHéraðshöfuðborgin er Nanjing, sem var suðurhöfuðborg Kína á tímum Mingveldisins (1368–1644) og höfuðborg stjórnar þjóðernissinna (1928–49). Borgin hefur einnig verið efnahagsleg og menningarleg miðstöð Suður- og Suðaustur-Kína frá fornu fari.
Í Nanjing borg bjuggu árið 2020 um 9.3 milljónir manna[1]. Aðrar stórborgir héraðsins eru Suzhou borg (12.7 milljónir íbúa), Xuzhou (9.1 milljónir), Nantong (7.7 milljónir), Yancheng (6.7 milljónir), Wuxi (7.5 milljónir), Changzhou (5.3 milljónir), Lianyungang (4.6 milljónir), Huai'an (4.6 milljónir), Yangzhou (4.6 milljónir), Taizhou (4.5 milljónir), og Suqian (5.0 milljónir).[2]
Í kínverska manntalinu árið 2020 var íbúafjöldi Jiangsu héraðs um 84.7 miljónir.[3]
Efnahagur
breytaAllt frá Sui ættarveldinu (581–618) og Tangveldinu (618 – 907) hefur Jiangsu verið þjóðhagsleg og viðskiptamiðstöð, meðal annars vegna byggingar hins mikla skipaskurðar sem hófst á 5. öld f.Kr. og liggur um nokkur héruð Kína. Gríðaröflugar borgir eins og Nanjing, Suzhou, Wuxi, Changzhou og Sjanghæ (sem var aðskilin frá Jiangsu héraði árið 1927) eru allar helstu kínversku efnahagsmiðstöðvarnar.
Jiangsu varð að sérstöku héraði árið 1667 á tímum Kangxi keisara. Nafnið er dregið af forskeytunum Jiangning og Suzhou, nöfnum tveggja mikilvægustu svæða innan héraðsins á þeim tíma. Landsvæði héraðsins spannar 102.600 ferkílómetrar.
Frá upphafi efnahagsumbóta árið 1990 hefur Jiangsu orðið þungamiðja kínverskrar efnahagsþróunar. Það er almennt álitið eitt þróaðasta hérað Kína mælt með þróun mannauðsvísitölu Sameinuðu Þjóðanna. Héraðið er heimili margra helstu útflytjenda heims á rafeindabúnaði, efnisvöru og vefnaðar. Það hefur einnig verið stærsti viðtakandi Kína í beinni erlendri fjárfestingu frá árinu 2006.
Myndir
breyta-
Zifeng Turninn í höfuðborginni Nanjing.
-
Hinn sögulegi bær Zhouzhuang, með mikla skipaskurði er um 30 km suðaustur af borginni Suzhou.
-
Yunyan pagóðan og Huqiu turn í Suzhou borg.
-
Sjónvarpsturn Xuzhou borgar.
-
Grafhýsi Sun Yat-sen í Nanjing, sem var einn stofnfeðra kínverska lýðveldisins.
-
Elsti hluti Changzhou. Borgin er mikil vatnaborg með þéttriðið net skurða og vatnaleiða.
-
Pagóðan á Tígrahæðum í Suzhou borg var byggð árið 961.
-
Beisi-pagóðan í Suzhou, byggð á árunum 1131 til 1162 á tímum Songveldisins.
-
Iðnaður í Ganjiaxiang, Qixia hverfi Nanjing borgar.
-
„Garður hógværa embættismannsins“ er einn margra garða Suzhou borgar.
-
Hraðlest á lestarstöðinni í Suzhou borg er meðal fjölfarnustu farþegastöðva í Kína. Lestirnar ná 200–350 km/h.
-
Bókasafnið á Xianlin háskólasvæði Nanjing háskóla, sem er einn fremsti rannsóknaháskóli Kína.
-
Hraðvagn (BRT) Lianyungang. Líkt og margar kínverskar borgir hefur borgin byggt upp hraðvagnakerfi til að draga úr umferðarþunga.
-
Hafnaraðstaða Lianyungang borg við Gulahaf.
-
Grísarif í sósu þykja ein helstu staðbundnum sérkennum í matarhefð Wuxi borgar.
-
Minnisvarði um Nanjing-fjöldamorð Japana á Kínverjum árið 1937 í Seinna stríð Kína og Japans. Um 200.000 til 300.000 voru drepin.
Tenglar
breyta- Vefsíða Encyclopaedia Britannica um Jiangsu. Inniheldur ýmsar upplýsingar um héraðið t.d. sögu, landslag, skipulag og markverða staði.
- Enskur vefur héraðsstjórnar Jiangsu. Inniheldur margvíslegar upplýsingar t.d. um sögu, skipulag, fréttir og ferðaþjónustu.
Heimildir
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Bulletin of the Seventh National Population Census of Jiangsu Province (18. maí 2021). „Seventh National Population Census of the People's Republic of China“. Jiangsu Provincial Bureau of Statistics. Sótt 27. júlí 2022.
- ↑ Bulletin of the Seventh National Population Census of Jiangsu Province (18. maí 2021). „Seventh National Population Census of the People's Republic of China“. Jiangsu Provincial Bureau of Statistics. Sótt 27. júlí 2022.
- ↑ Bulletin of the Seventh National Population Census of Jiangsu Province (18. maí 2021). „Seventh National Population Census of the People's Republic of China“. Jiangsu Provincial Bureau of Statistics. Sótt 27. júlí 2022.