Handknattleiksárið 1950-51
Handknattleiksárið 1950-51 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1950 og lauk sumarið 1951. Valsarar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki en Fram sigraði kvennaflokki. Íslendingar léku enga landsleiki á tímabilinu.
Karlaflokkur
breyta1. deild
breytaValsmenn urðu Íslandsmeistarar á fullu húsi stiga eftir sigur á Ármanni í lokaleik, 12:7. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 10 |
Ármann | 8 |
Víkingur | 6 |
Fram | 4 |
ÍR | 2 |
Afturelding | 0 |
Afturelding féll í 2. deild.
2. deild
breytaTekin var upp keppni í 2. deild. KR fór með sigur af hólmi og tryggði sér sæti í 1. deild. Keppt var í þriggja liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
KR | 4 |
FH | 2 |
ÍA | 0 |
Kvennaflokkur
breyta1. deild
breytaFramarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna annað árið í röð. Leikin var einföld umferð í fimm liða deild.
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 8 |
Ármann | 6 |
KR | 3 |
Haukar | 3 |
Valur | 0 |
Landslið
breytaEngir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu.