Guðjón Arnar Kristjánsson
Guðjón Arnar Kristjánsson (5. júlí 1944 – 17. mars 2018) var íslenskur stjórnmálamaður og formaður Frjálslynda flokksins. Guðjón var fyrrverandi skipstjóri og fjallaði mikið um sjávarútvegsmál og hagsmuni sjómanna. Vegna þessa var hann af mörgum talinn talsmaður landsbyggðarinnar.
Guðjón Arnar Kristjánsson (GAK) | |||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Alþingismaður | |||||||||||||
| |||||||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||||||
Fæddur | 5. júlí 1944 Ísafirði, Íslandi | ||||||||||||
Látinn | 17. mars 2018 (73 ára) Reykjavík, Íslandi | ||||||||||||
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi flokkurinn | ||||||||||||
Maki | Björg Hauksdóttir (skilin) Maríanna Barbara Kristjánsson (g. 1989) | ||||||||||||
Börn | 6 | ||||||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Guðjón var sonur Kristjáns Sigmundar Guðjónssonar og konu hans, Jóhönnu Jakobsdóttur. Fyrir stjórnmálaferilinn fékkst Guðjón við sjómennsku, hann lauk stýrimannanámi við Stýrimannaskólann í Reykjavík og var skipstjóri í þrjá áratugi. Guðjón var formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar 1975-1984 og forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands 1983-1999. Guðjón var meðlimur í Sjálfstæðisflokknum líkt og Sverrir Hermannsson en árið 1999 sögðu þeir sig frá honum og stofnuðu Frjálslynda flokkinn. Guðjón hafði þann siðinn að halda ræður einhverstaðar á landinu á Sjómannadeginum.
Guðjón lýsti sig andsnúinn stuðningi íslenskra stjórnvalda við stríðið í Írak. [1] Frjálslyndi flokkurinn var gagnrýndur fyrir umburðarlitla afstöðu sína gagnvart innflytjendum. Guðjón hélt því sjálfur fram t.d. að undirboð erlends vinnuafls skaðaði starfsaldurtengd lífeyrisréttindi íslenskra iðnaðarmanna. [2]