Sjómannadagurinn
íslenskur hátíðisdagur til heiðurs sjómönnum
Sjómannadagurinn er fyrsti sunnudagurinn í júní ár hvert, nema ef hvítasunnu ber upp á þann dag, þá er hann næsti sunnudagur þar á eftir. Hann er hátíðisdagur allra sjómanna. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur þann 6. júní árið 1938 í Reykjavík og á Ísafirði[1] en frá upphafi 20. aldar tíðkaðist að halda sérstakar sjómannamessur í kirkjum áður en þilskipin héldu til veiða eftir vetrarlægi, sem var yfirleitt 3. eða 4. sunnudag eftir þrettánda. Árið 1987 var dagurinn lögskipaður frídagur sjómanna.
Tilvísanir
breytaTenglar
breytaWikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Sjómannadagurinn.
- Fyrsti sjómannadagurinn; grein í Alþýðublaðinu 1938
- Stórfengleg hátíðahöld sjómanna; grein í Morgunblaðinu 1938
- Íslendingar og hafið; grein í Sjómannablaðinu Víkingi 1968
- Sjómannadagurin var stofnaður til þess að efla samstöðu meðal sjómanna; grein í Morgunblaðinu 1988
- Fyrsti sjómannadagurinn ógleymanlegur; hluti af grein í Sjómannablaðinu Víkingi 1983