Evrópsku kvikmyndaverðlaunin

árleg kvikmyndahátíð í Evrópu
(Endurbeint frá Felix-verðlaunin)

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin er árleg kvikmyndahátíð sem stofnuð var árið 1988 af Evrópsku kvikmyndaakademíunni. Verðlaunahátíðin, sem kölluð var Felixverðlaunin fram til ársins 1997, er ætlað að beina sjónum almennings að evrópskri kvikmyndagerð og að efla sjálfsmynd evrópskrar kvikmyndagerðar.

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
European Film Awards (enska)
Veitt fyrirFramúrskarandi árangur í kvikmyndagerð
StaðsetningEvrópu
UmsjónEvrópska kvikmyndaakademían
Fyrst veitt1988
Seinast veitt2024
Vefsíðawww.europeanfilmawards.eu

Verðlaun eru veitt í ýmsum flokkum, s.s. fyrir besta leik karla og kvenna, bestu leikstjórn og bestu heimildamynd.

Verðlaunaflokkar

breyta

Núverandi fokkar

breyta
  • Besta myndin
  • Besta grínmyndin
  • Evrópsk uppgötvun
  • Besta teiknimyndin í fullri lengd
  • Besta stuttmyndin
  • Besta heimildamyndin
  • Besti leikstjóri
  • Besti leikari
  • Besta leikkona
  • Besta kvikmyndatónlistin
  • Besti klippari
  • Besti handritshöfundur
  • Besti leikmyndahönnuður
  • Besta kvikmyndatakan
  • Besta evrópska samframleiðslan
  • Besta hljóðið
  • Besti búningahönnuður
  • Besta förðun og hárgreiðsla
  • Bestu tæknibrellur

Besta myndin

breyta

Eftirfarandi myndir hafa hlotið verðlaun í flokknum besta myndin:

Ár Upprunalegur titill Íslenskur titill Leikstjórn Framleiðsluland
1988 Krótki film o zabijaniu Stutt mynd um dráp Krzysztof Kieslowski   Pólland
1989 Topio stin omichli Landslag í þokunni Þeo Angelopúlos   Grikkland
1990 Porte aperte Opnar dyr Gianni Amelio   Ítalía
1991 Riff-Raff Ken Loach   Bretland
1992 Il Ladro di bambini Stolin börn Gianni Amelio   Ítalía
1993 Útomljonnje solntsem Sólbruni Níkíta Míkhalkov   Rússland
1994 Lamerica Ameríka Gianni Amelio   Ítalía
1995 Land and Freedom Land og frelsi Ken Loach   Bretland
1996 Breaking the Waves Brimbrot Lars von Trier   Danmörk
1997 The Full Monty Með fullri reisn Peter Cattaneo   Bretland
1998 La Vita è bella Lífið er fallegt Roberto Benigni   Ítalía
1999 Todo sobre mi madre Allt um móður mína Pedro Almodóvar   Spánn
2000 Dancer in the Dark Myrkradansarinn Lars von Trier   Danmörk,   Frakkland
2001 Amélie Hin stórkostlegu örlög Amélie Poulain Jean-Pierre Jeunet   Frakkland
2002 Hable con ella Talaðu við hana Pedro Almodóvar   Spánn
2003 Goodbye, Lenin! Vertu sæll, Lenín! Wolfgang Becker   Þýskaland
2004 Gegen die Wand Hlaupa á vegg Fatih Akın   Þýskaland
2005 Caché Falinn Michael Haneke   Frakkland
2006 Das Leben der Anderen Líf annarra Florian Henckel von Donnersmarck   Þýskaland
2007 4 luni, 3 săptămâni şi 2 zile Fjórir mánuðir, 3 vikur og 2 dagar Cristian Mungiu   Rúmenía
2008 Gomorra Gómorra Matteo Garrone   Ítalía
2009 Das weiße Band Hvíti borðinn Michael Haneke   Austurríki
2010 The Ghost Writer Skrifað af öðrum Roman Polanski   Frakkland
2011 Melancholia Hryggð Lars von Trier   Danmörk
2012 Amour Ást Michael Haneke   Austurríki
2013 La grande bellezza Fegurðin mikla Paolo Sorrentino   Ítalía,   Frakkland
2014 Ida Paweł Pawlikowski   Pólland,   Danmörk
2015 Youth Æska Paolo Sorrentino   Ítalía,   Frakkland,   Bretland,   Sviss
2016 Toni Erdmann Maren Ade   Þýskaland,   Austurríki
2017 The Square Ferningurinn Ruben Östlund   Svíþjóð,   Frakkland,   Þýskaland,   Danmörk
2018 Zimna wojna Kalt stríð Paweł Pawlikowski   Pólland,   Frakkland,   Bretland
2019 The Favourite Dálætið Gíorgos Lanþímos   Bretland,   Sviss
2020 Druk Drykkja Thomas Vinterberg   Danmörk
2021 Quo Vadis, Aida? Hvert ferðu, Aida? Jasmila Žbanić   Bosnía og Hersegóvína,   Austurríki   Holland,   Frakkland,   Pólland,   Noregur,   Þýskaland,   Rúmenía,   Tyrkland
2022 Triangle of Sadness Sorgarþríhyrningurinn Ruben Östlund   Svíþjóð,   Þýskaland,   Frakkland,   Bretland
2023 Anatomie d'une chute Fallið er hátt Justine Triet   Frakkland
2024 Emilia Pérez Jacques Audiard   Frakkland

Tengill

breyta