Paweł Pawlikowski
pólskur kvikmyndagerðarmaður
Paweł Aleksander Pawlikowski (f. 15. september 1957) er pólskur kvikmyndaleikstjóri og handritshöfundur. Hann hlaut snemma lof fyrir röð heimildamynda á tíunda áratugnum og því næst fyrir kvikmyndir sínar Last Resort (2000) og Sumarást (2004). Góður árangur hans hélt áfram þegar myndin Ida (2013) vann Óskarsverðlaun sem besta erlenda kvikmyndin og þegar hann var valinn besti leikstjóri á Kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir mynd sína Kalt stríð (2018).
Paweł Pawlikowski | |
---|---|
Fæddur | 15. september 1957 Varsjá í Póllandi |
Störf | Kvikmyndaleikstjóri Handritshöfundur |
Börn | 2 |
Kvikmyndaskrá
breytaKvikmyndir
breytaÁr | Upprunalegur titill | Íslenskur titill | Leikstjóri | Handritshöfundur |
---|---|---|---|---|
1998 | The Stringer | Já | Já | |
2000 | Last Resort | Já | Já | |
2004 | My Summer of Love | Sumarást[1] | Já | Já |
2011 | La femme du Vème | Konan í fimmta hverfi[2] | Já | Já |
2013 | Ida | Já | Já | |
2014 | Lost in Karastan | Nei | Já | |
2018 | Zimna wojna | Kalt stríð | Já | Já |
Tilvísanir
breyta- ↑ Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 4. desember 2023.
- ↑ Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 4. desember 2023.