Enn ein stöðin
Enn ein stöðin er heitið á fimmtu, sjöttu, áttundu og níundu þáttaröð Spaugstofunnar frá 1996 til 1999. Fimmta þáttaröðin var sýnd frá 13. janúar 1996 til 25. maí 1996 og var 20 þátta. Sjötta þáttaröðin var sýnd frá 11. janúar 1997 til 26. apríl 1997 og var 16 þátta. Áttunda þáttaröðin var sýnd frá 10. janúar 1998 til 25. apríl 1998 og var 16 þátta. Níunda og jafnframt síðasta þáttaröðin undir nafninu Enn ein stöðin var sýnd frá 10. október 1998 til 1. maí 1999 og var 27 þátta.
Fimmta þáttaröðin (1996)
breytaSpaugstofan sneri þá aftur eftir fjögurra ára hlé (á meðan voru sumir í Imbakassanum) og birtust aftur með fréttaformið. Sérþættir í seríunni voru Klámhundalíf, Klerkar í klípu, Geimskipið Eining og Alltísóma. Lokaþáttur seríunnar var 100 þáttur spaugstofunnar og var 50 mínútur í stað 20.
Sjötta þáttaröðin (1997)
breytaSpaugstofan var kærð fyrir guðlast þennan veturinn, sem birtist í 12 þætti spaugstofunnar sem var sendur út laugadaginn 29. mars 1997 og var páskahelgin, í kjölfar þess gerðu þeir sérþáttinn Gullna sviðið. Allar ákærur voru felldar niður í ágúst 1997. Fleiri sérþættir voru Brandarakallinn í kaoz.
Áttunda þáttaröðin (1998)
breytaHaustið 1997 var gerð aukasería spaugstofunnar Stöðvarvík sem gerðist í litlu sjávarplássi, sú er sjöunda þáttaröð Spaugstofunnar. Sérþættir 1998 voru: Brjálaða vaktin, Guðað á gluggan og Laxbankinn.
Fjórða þáttaröðin (1998-1999)
breytaVeturinn 1998 til 1999 voru Erla Ruth Harðardóttir og Linda Ásgeirsdóttir með í för. Þættirnir voru sýndir frá 10. október til 19. desember 1998 og 9. janúar til 1. maí 1999. Sérþættir voru Hátíð góðs og kviðvar og 2000 vandinn. Spaugstofan byrjaði aftur 2002 með tíundu þáttaröðina en ekki í fréttastofuforminu.