Atvinnuöryggi
Atvinnuöryggi á við líkurnar á því að einstaklingur missi atvinnu. Á útþenslutímum eykst eftirspurn hjá fyrirtækjum sem kallar á fjárfestingu í mannauði. Þegar fyrirtæki vaxa eykst atvinnuöryggi. Þvert á móti á samdráttartíma dregur úr eftirspurn hjá fyrirtækjum og þar af leiðandi aukast líkurnar á því að starfsmönnum verði sagt upp.
Ólíkar aðferðir má nota til að auka atvinnuöryggi. Í mörgum löndum gilda lög sem gera það ólöglegt að segja starfsfólki upp nema við tilteknar aðstæður. Atvinnuöryggi má jafnframt tryggja með kjarasamningum. Einstaklingar geta einnig haft áhrif á eigið atvinnuöryggi með því að bæta tæknikunnáttu sína.
Atvinnuleysishlutfall er góður mælikvarði á atvinnuöryggi.
Listi yfir lönd eftir atvinnuöryggisstigi
breytaHér fyrir neðan er listi yfir lönd eftir atvinnuöryggisstigi. Atvinnuöryggisstigið er mikilvægur mælikvarði á lífsgæðum og lífshamingju einstaklinga. Listinn sýnir líkurnar á því að einstaklingur missi atvinnu í ýmsum OECD-löndum árið 2012. Útreikningurinn fer þannig fram að fjölda þeirra sem voru í atvinnu árið 2011 en misstu atvinnu árið 2012 er deilt með fjölda þeirra sem voru í atvinnu árið 2012.
Sæti | Land | Líkur á starfsmissi árið 2012[1] |
---|---|---|
1 | Sviss | 2,8% |
2 | Japan | 2,9% |
2 | Noregur | 2,9% |
4 | Suður-Kórea | 3,0% |
5 | Þýskaland | 3,2% |
6 | Austurríki | 3,4% |
7 | Holland | 3,6% |
8 | Lúxemborg | 4,0% |
8 | Rússland | 4,0% |
10 | Tékkland | 4,2% |
11 | Ísland | 4,3% |
12 | Ástralía | 4,4% |
13 | Belgía | 4,5% |
14 | Chile | 4,7% |
16 | Brasilía | 4,8% |
17 | Slóvenía | 5,0% |
18 | Eistland | 5,3% |
19 | Ítalía | 5,5% |
20 | Bretland | 5,6% |
21 | Slóvakía | 5,8% |
21 | Nýja-Sjáland | 5,8% |
21 | Danmörk | 5,8% |
24 | Bandaríkin | 6,3% |
25 | Írland | 6,4% |
25 | Finnland | 6,4% |
27 | Ísrael | 6,5% |
27 | Svíþjóð | 6,5% |
27 | Frakkland | 6,5% |
30 | Kanada | 6,6% |
31 | Ungverjaland | 6,7% |
32 | Pólland | 7,3% |
33 | Tyrkland | 7,8% |
34 | Portúgal | 9,1% |
35 | Grikkland | 12,0% |
36 | Spánn | 17,7% |