Þingeyjarsýsla
Þingeyjarsýsla er sýsla á Norðurlandi eystra og nær frá botni Eyjafjarðar að Bakkaflóa sunnan Langaness. Sýslumaður hefur aðsetur á Húsavík. Upphaf sýslunnar má rekja til Jónsbókar þar sem talað er um Þingeyjarþing.
Kjördæmi
breytaÞingeyjarsýsla var sérstakt kjördæmi frá 1844 til 1877 þegar henni var skipt í tvö einmenningskjördæmi, Suður-Þingeyjarsýslu og Norður-Þingeyjarsýslu. Þessi skipting hélst til 1959 þegar þau urðu bæði hluti af Norðurlandskjördæmi eystra. Nú er sýslan hluti Norðausturkjördæmis.