Stella í orlofi
Stella í orlofi er íslensk kvikmynd, frumsýnd 18. október 1986. Hún fjallar um Stellu sem fer í sumarbústað með sænskum alka sem var á leiðinni í meðferð hjá SÁÁ. Þau lenda í alls kyns vandræðum á ferðum sínum. Međ aðalhlutverk fara þau Edda Björgvinsdóttir, Gestur Einar Jónasson, Þórhallur Sigurðsson, Sólveig Arnarsdóttir, Björgvin Franz Gíslason og Unnur Berglind Guðmundsson.
Stella í orlofi | |
---|---|
Leikstjóri | Þórhildur Þorleifsdóttir |
Handritshöfundur | Guðný Halldórsdóttir Larry Wachowski |
Framleiðandi | Umbi |
Leikarar | |
Frumsýning | 1986 |
Lengd | 84 mín. |
Tungumál | íslenska |
Aldurstakmark | Leyfð |
Framhald | Stella í framboði |
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Handritshöfundur er Guðný Halldórsdóttir.
Söguþráður
breytaStella í orlofi fjallar um Stellu og baráttu hennar við geðillsku karla, tryllt börn, alkóholista, flugmenn, Læjonsklúbbinn Kidda, danskar drósir og laxeldi. Georg ætlar að fara í veiðiferð með erlendum viðskiptafélaga. En þegar hann handleggsbrotnar og endar á spítala ákveður Stella konan hans að taka til sinna ráða. Hún fer á flugvöllinn og finnur Salomon sem er viðskiptafélagi Georgs og fer með hann í veiðiferð í Selá. En Salomon er alls ekki viðskiptafélagi Georgs. Hann er alkóhólisti og er kominn til Íslands til að fara í meðferð hjá SÁÁ. Út af þessum misskilningi fara Salomon, Stella og börnin hennar öll í veiðiferð í Selá.[1]
Heimildir
breyta- ↑ Stella í orlofi, sótt 15. febrúar 2020