Sigurður Pálsson (skáld)
Sigurður Pálsson (30. júlí 1948 - 19. september 2017) var íslenskur rithöfundur, ljóðskáld, þýðandi og leikskáld. Sigurður hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín og verk hans hafa verið þýdd á fjölda tungumála. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2007.
Ævi
breytaSigurður fæddist á Skinnastað í Norður-Þingeyjarsýslu þar sem faðir hans var prestur. Sigurður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1967 og lauk námi í leikhúsfræði og bókmenntum í Sorbonne háskóla í París. Aðalstarf Sigurðar var við ritstörf og þýðingar en hann sinnti einnig ýmsum öðrum störfum, t.d. var hann fréttaritari, leiðsögumaður, kennari og starfaði við sjónvarp og kvikmyndir. Hann kenndi við Leiklistarskóla Íslands 1975–1978 en síðustu æviár sín sinnti hann kennslu við ritlistardeild Háskóla Íslands.
Hann var forseti Alliance Française um tíma og formaður Rithöfundasambands Íslands frá 1984-1988.
Eiginkona Sigurðar var Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri og eignuðust þau einn son.[1]
Verk Sigurðar
breytaLjóð
breyta- Ljóð vega salt (1975)
- Ljóð vega menn (1980)
- Ljóð vega gerð (1982)
- Ljóð námu land (1985)
- Ljóð námu menn (1988)
- Ljóð námu völd (1990)
- Ljóðlínudans (1993)
- Ljóðlínuskip (1995)
- Ljóðlínuspil (1997)
- Ljóðtímaskyn (1999)
- Ljóðtímaleit (2001)
- Ljóðtímavagn (2003)
- Ljóðorkusvið (2006)
- Ljóðorkuþörf (2009)
- Ljóðorkulind (2012)
- Ljóð muna rödd (2016)
- Ljóð muna ferð (2018)
Endurminningarbækur
breyta- Minnisbók (2007)
- Bernskubók (2011)
- Táningabók (2014)
Skáldsögur
breyta- Parísarhjól (1998)
- Blár þríhyrningur (2000)
- Næturstaður (2002)
Leikrit
breyta- Hvað er í kokinu á hvalnum (1975)
- Undir suðvesturhimni (1976)
- Hlaupvídd sex (1977)
- Húsið á hæðinni eða hring eftir hring (1986)
- Hótel Þingvellir (1990)
- Völundarhús (1997)
- Einhver í dyrunum (2000)
- Tattú (2003)
- Utangátta (2008)
- Blinda konan og þjónninn, útvarpsleikrit (2014)
- Segulsvið (2015)[2]
Viðurkenningar
breytaSigurður var valinn borgarlistamaður Reykjavíkur á tímabilinu 1987-1990, hann hlaut riddarakross frönsku heiðursorðunnar árið 2007 og íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár fyrir bók sína Minnisbók. Hann hlaut Grímuverðlaun árið 2008 fyrir leikrit sitt Utangátta, verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 2016 og riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag árið 2017.[1]
Heimildir
breytaTilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Visir.is, „Sigurður Pálsson er látinn“ (skoðað 13. desember 2020)
- ↑ Bokmenntaborgin.is, „Sigurður Pálsson“ (skoðað 13. desember 2020)