Phetsarath

Prins og forsætisráðherra Laos 1942-1945

Prins Phetsarath Rattanavongsa var forsætisráðherra Laos frá 1942 til 1945 og fyrsti og eini varakonungur í konungsríkinu Laos.

Phetsarath Ratanavongsa
ສົມເດັຈເຈົ້າ ມຫາ ອຸປຣາຊ ເພັຊຣາຊ ຣັຕນວົງສາ
Forsætisráðherra Laos
Í embætti
21. ágúst 1941 – 10. október 1945
Persónulegar upplýsingar
Fæddur19. janúar 1890
Luang Prabang, Laos
Látinn14. október 1959 (69 ára) Luang Prabang, Laos
StjórnmálaflokkurLao Issara (1945-1949)
MakiNhin Kham Venne
Apinnaphon Yongchaiyudh

Phetsarath var einn af leiðtogum Lao Issara-hreyfingarinnar sem barðist gegn yfirráðum Frakklands yfir Laos.

Phetsarath fæddist 19 janúar 1890 í Luang Prabang, sonur Bounkhong varakonungs í Luang Prabang. Tveir yngri hálfbræður hans voru Souvanna Phouma og Souphanouvong. Phetsarath fór erlendis til náms, fyrst til Saigon og síðan til Parísar.

Eftir að Frakkar höfðu náð undir sig Laos á nýtt 1946 flúði Phetsarath til Taílands og sneri ekki aftur fyrr en 1957. Eftir heimkomuna hafði hann engin bein afskipti af stjórnmálum. Phetsarath lést 14 október 1959.

Heimildir

breyta
  • Stuart-Fox, Martin (1997) A History of Laos. Cambridge: Cambridge University Press.