Draumsóleyjaætt
(Endurbeint frá Papaveraceae)
Draumsóleyjaætt (fræðiheiti: Papaveraceae) er ætt jurta sem inniheldur 44 ættkvíslir og um það bil 770 tegundir af blómstrandi plöntum í Sóleyjabálki (Ranunculales). Ættin er útbreidd um alla jörð nema að hún er nánast óþekkt í hitabeltinu. Flestar eru fjölærar plöntur, en nokkrar eru runnar og lítil tré.
Einkenni
breytaLaufblöð plantna af draumsóleyjaætt vaxa stakstæð upp af stönglinum og eru gjarnan með djúpar skerðingar á blaðbrúninni. Plöntur innihalda hvítan mjólkursafa.[2]
Blómin hafa tvö bikarblöð sem umlykja blómið áður en það springur út en falla af þegar blómið opnast. Krónublöðin liggja oft í tveimur hringjum og fræflarnir í mörgum röðum umhverfis frævuna. Aldinið er hýðisaldin sem opnsast með litlum götum í annan endann.[2]
Myndir
breyta-
Aldin og óútsprungið blóm draumsólar.
-
Opið hýðisaldin af Argemone ochroleuca.
-
Eitraður gulur mjólkursafi úr stöngli Chelidonium majus.
-
Mjólkursafi úr aldini draumsólar.
-
Þurrkuð aldin og valmúafræ.
Tilvísanir
breyta- ↑ Angiosperm Phylogeny Group (2009). „An update of the Angiosperm Phylogeny Group classification for the orders and families of flowering plants: APG III“. Botanical Journal of the Linnean Society. 161 (2): 105–121. doi:10.1111/j.1095-8339.2009.00996.x.
- ↑ 2,0 2,1 The Seed Site (án árs). Papaveraceae - the poppy family. Sótt þann 21. júlí 2019.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Draumsóleyjaætt.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Papaveraceae.