Manuel Valls
Manuel Carlos Valls Galfetti (fæddur 13. ágúst 1962) er fransk-spænskur stjórnmálamaður og fyrrum forsætisráðherra Frakklands. Hann gekk í það embætti þann 31. mars 2014 og gegndi því til ársins 2016. Hann var innanríkisráðherra Frakklands frá 2012 til 2014. Valls var meðlimur í Sósíalistaflokknum en sagði sig úr honum árið 2017.
Manuel Valls | |
---|---|
Forsætisráðherra Frakklands | |
Í embætti 31. mars 2014 – 6. desember 2016 | |
Forseti | François Hollande |
Forveri | Jean-Marc Ayrault |
Eftirmaður | Bernard Cazeneuve |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. ágúst 1962 Barselóna, Spáni |
Þjóðerni | Franskur (með spænskan ríkisborgararétt) |
Stjórnmálaflokkur | Sósíalistaflokkurinn (1980-2017) |
Maki | Nathalie Soulié (skilin) Anne Gravoin (skilin) Olivia Grégoire (skilin) Susana Gallardo Terrededia |
Börn | Eva Hugo |
Háskóli | Université Panthéon-Sorbonne |
Starf | Stjórnmálamaður |
Hann fæddist í Barselóna, en faðir hans var spænsk-katalónskur og móðir hans svissnesk. Hann var borgarstjóri Évry frá 2001 til 2012, og var kosinn í öldungadeild Franska þingsins í fyrsta skiptið árið 2002. Hann tilheyrði frjálslyndu deild Sósíalistaflokksins, sem er svipuð skandinavískum félagslegum lýðræðisflokkum.
Valls sagði af sér sem forsætisráðherra í desember árið 2016 til þess að geta sóst eftir útnefningu Sósíalistaflokksins sem frambjóðandi í frönsku forsetakosningunum 2017.[1] Í forvali Sósíalistaflokksins tapaði Valls hins vegar fyrir Benoît Hamon.[2] Eftir forsetakosningarnar 2017 sagði Valls sig úr Sósíalistaflokknum og lýsti yfir stuðningi við stjórnmálahreyfingu Emmanuels Macron, nýkjörins forseta Frakklands.[3] Hann lýsti því yfir að Sósíalistaflokkurinn væri dauður í núverandi mynd og sóttist eftir því að bjóða sig fram á þing fyrir flokk Macrons, La République en marche,[4] en hafði ekki erindi sem erfiði.
Í september árið 2018 lýsti Valls því yfir að hann hygðist gefa kost á sér sem borgarstjóri Barselóna.[5] Kosningarnar voru haldnar þann 26. maí 2019, en Valls hlaut aðeins um 12% atkvæða og lenti í fimmta sæti.[6]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Cazeneuve næsti forsætisráðherra Frakklands“. mbl.is. 6. desember 2016. Sótt 24. október 2018.
- ↑ „Benoit Hamon sigraði í forvali“. mbl.is. 23. janúar 2017. Sótt 24. október 2018.
- ↑ „Manuel Valls hættur í Sósíalistaflokknum“. RÚV. 27. júní 2017. Sótt 24. október 2018.
- ↑ „Bjóða Brútus og Júdas sig fram?“. mbl.is. 9. maí 2017. Sótt 24. október 2018.
- ↑ „Vill verða borgarstjóri Barcelona“. mbl.is. 25. september 2018. Sótt 24. október 2018.
- ↑ Alexandre Boudet (26. maí 2019). „Manuel Valls échoue à Barcelone, cinquième des municipales“ (franska). Huffington Post. Sótt 26. maí 2019.
Fyrirrennari: Jean-Marc Ayrault |
|
Eftirmaður: Bernard Cazeneuve |